Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: EUROGAYSHIT

í Tilveran fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Mér fannst persónulega mjög gaman að þessum þáttum og skemmtilegt að hafa þá svona marga og síðan umræður í kringum þetta og svona :) Það eina sem mér fannst ekki skemmtilegt var upprifjunarþátturinn. Þrátt fyrir að það séu rosalega margir að segja hversu leiðinlegir þessir þættir hafa verið þá sýna skoðannakannanir mjög mikið áhorf á þessa þætti :) Svo þú þarft ekkert að skamma frænku þína :)

Re: Haddaway - What is love :)

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Eeeeeeeeeeeeeeelska þetta lag! :D Hvað hét aftur myndin með þessu lagi í? Hún er snilld! Langar svo að sjá hana aftur!

Re: brennsla

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Coldplay, Gavin Mikhail, Gavin DeGraw, James Blunt, Emilana Torrini, oooog Katie Melua…tónlistin hennar er mjög góð..ótrúlega þægilegt að hlusta á hana :)

Re: Herdís Rútsdóttir

í Söngvakeppnir fyrir 17 árum, 3 mánuðum
:D

Re: Nei nei nei.!!!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Má ég spurja hvað þessi strákur er gamall? :)

Re: Að gráta

í Leikhús fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já..held bara að það sé of áberandi því ég er líka í senunni sem er á undan :) Takk samt :)

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Haha, já..þetta er svaka rómantísk spurnig :D ,,Hæ"…skal muna það! Hehehe :)

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já, kanski :) En því miður er ég ekki með honum í neinum tíma eða neinu, og vinir mínir þekkja hann ekki né vini hans :P Þá væri þetta þúsund sinnum auðveldara:P

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Jaaaaaááá, geturu komið með eitthvað annað sem ég get sagt heldur en ,,hvað er klukkan?" :P

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já, það er reyndar satt. Hef heyrt að margir héldu að ég væri blindfull þarna, sem ég var ekki..en kanski er auðveldara að starta samræður samt ef ég hefði dansað við hann. Eða..æi, ég veit ekki…ég er svo mikill auli í þessum málum:P Og já..takk fyrir leiðréttinguna..ég er stelpa :)

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Jább, ég líka :)

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Jaaá, eiginlega sama hér sko…nema það er ekki bekkjarkerfi. En hey, ef þú sérð hana einhversstaðar eina..talaðu þá við hana!

Re: Að gráta

í Leikhús fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Jaaá, það er bara ekki möguleiki þar sem ég er í senunni á undan og á eftir án þess að fara af sviðinu. En takk samt :)

Re: Að gráta

í Leikhús fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Ég er í atriðinu á undan (þar sem ég á ekki að gráta) og líka eftir þetta (þar sem ég á ekki heldur að gráta) þannig…það er ekki allveg inn í myndinni :) Takk samt :) Og já..ég er ein að gráta þarna á sviðinnu :P

Re: Að gráta

í Leikhús fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já..er með atriði sem ég get ekki talað um án þess að gráta en það virkar ekki að fara yfir það í hugan meðan ég er að leika því ég er í senuninni á undan og síðan byrjar strax senan sem ég á að fara að gráta í…finnst líka aðeins of sárt að rifja þetta upp. En ég reyni samt að hugsa eitthvað sorglegt og lifa mig vel inn í leikritið :)

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já, takk sömuleiðis ;) Ég mana þig til að tala við hana :P

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Æi, deeeem, þú verður að tala við hana! Oooog já…ég verð að tala við hann:P Mér finnst þetta mjög svipað..við erum í svipaðri stöðu :)Æi, Þetta er of erfitt:P

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Hehehehe, jaaaaaaááá..ohh, afhverju er svona erfitt að starta samræður úr engu :P

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Neibb, þessvegna drakk ég bara smá. Var pínu ölvuð en það var runnið af mér á ballinu. Drekk oftast ekki. Þó ég sé feimin í þessum málum er ég ekkert feimin að dansa eins og brjálæðingur og skemmta mér á böllum edrú:) Að æla yfir hann hefði verið ógeðslegt :)

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Hehe, já ég er bara svo hrædd um að þetta verði bara eitthvað ,,Hæ, varst þú ekki á ballinu á föstudaginn?“ ,,Jú” Ok..fannst þér ekki gaman? :)“ ,,Jú, mjög gaman” ,,Okey…“ *löööng þögn* ,,heyrðu, ég þarf að fara í tíma, bæ!” En ef hann segir ekki neitt er hann heldur ekki mín týpa..svo..sakar ekki að prófa:P Bara erfiðara í framkvæmd heldur en að segja það:P

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Hehe, ég vissi að einhver myndi segja þetta :) Neeei, vil ekki drekka mig fulla. Drakk pínu þegar ég fór á þetta ball en var samt allveg með sjálfri mér. Finnst það bara ekkert aðlaðandi þegar stelpur eru ölvaðar og ég hefði örugglega gert mig að fífli með því að segja eitthvað heimskulegt við hann…svo hefði ég kanski bara ælt á hann…það hefði nú ekki verið mjög sniðugt :)

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já :) Það skiptir nefnilega ekkert svo miklu máli þó hann hafi ekki áhuga og ég geri mig að fífli…ef ég hugsa út í það -en samt er þetta eitthvað svo erfitt!

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já, þetta er rétt :) Mismunandi hjá mér. Þegar ég hitti einhverja nýja manneskju er ég stundum feimin en það fer samt algjörlega eftir aðstæðum. Svo fer það eiginlega líka eftir manneskjunni hvort ég get eitthvað sagt eða ekki. Til dæmis var ég pínku hrifin af einum strák og ég talaði við hann (vorum í sameiginlegum vinahóp svo þetta var ekki eins erfitt þá) en málið er að hann svaraði mér alltaf bara með ,,já“ ,,nei” eða einni setningu svo ég þurfti alltaf að halda samræðunni uppi! Það var...

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Haha, ok :) Vonandi fæ ég góð svör sem geta hjálpað þér! :) Þetta er ótrúlega erfitt..

Re: Æi, þessi feimni!

í Rómantík fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já, ég veit allveg að ég er ekki hrifin af honum…varla hægt þar sem ég þekki hann ekki. Málið er bara að mér finnst bara eitthvað vera við hann sem ég get ekki útskýrt. Hann er ekki það sætur að hann sé klipptur úr bíómyndum..það er bara eitthvað við hann sem heillar mig og ég veit ekki einu sinni hvað það er :P Það að mig langi í kærasta…jaa, gæti ruglað en samt ekki. Það var til dæmis einn strákur sem er voða fínn og skemmtilegur að reyna svaka við mig á ballinu en ég gerði ekkert í því...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok