Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Flottasti gítarinn! (16 álit)

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvað er flottasti gítar sem þið hafið augum litið?(skjár telst með ;-) Minn mun vera Gibson Les Paul Classic, en þið getið séð mynd af honum hérna: http://images.misupply.com/products/original/Gibson/19570.jpg

Play.com (11 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvað tekur langan tíma fyrir vöru sem maður pantar frá www.play.com að komast alveg upp að dyrum hjá manni?

Flottasti bíll sem ég hef séð (8 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Bróðir minn var að kaupa sér Lincoln Navigator, ég get svo svarið það þetta er flottasta tæki sem ég hef á ævi minni séð. Algjör dreki!

Tónlistadómasíða (2 álit)

í Músík almennt fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Er til einhver stór síða á netinu sem gagnrýnir tónlist? Ég veit nú ekki um neina en ég efa ekki að hún sé til. Langar helst að finna síðu þar sem hægt er að finna disk, og svo stjörnur og comments. Helst ekki einhverja svona þunga eins og allmusic.com - En ef þið vitið um einhverja svona síðu, endilega látið vita. :-)

Pre-paid gamecards (6 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Verður hægt að kaupa svona pre-paid kort hjá einhverjum verslunum á Íslandi? Var BT ekki einu sinni að selja þetta fyrir einhvern leik?

æji greinar á rómantík æji (16 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvað er þetta með greinarnar á Rómantík, alltaf byrja þeir svona: “það er þessi stelpa/strákur sem ég er skotin(n) í, við skulum kalla hana X”. Hver í fjandanum nennir að lesa grein með svona nöfnum, sérstaklega þegar það eru komnar 3-4 manneskjur í þetta og þetta er orðið X, K, J og B. Frekar pirrandi if you ask me… Jæja nú er ég góður! :-)

Innihald vefsíða (8 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég prófaði að leita svolítið á korkunum á undan en fann ekkert um þetta svona í fljótu bragði. Svo ég var að spá hvort þið gætuð komið með einhverjar hugmyndir um hvað er hægt að hafa á vefsíðu, eitthvað svona skemmtilegt og tilbreytilegt. Eitthvað sem fólki finnst gaman að skoða. Ég mun opna bara svona einfalda private vefsíðu fljótlega, og verð með myndir, kvikmyndagagnrýni, fréttir(blogg?) og eitthvað fleira. Ef þið hafið einhverjar skemmtilegar hugmyndir megið þið endilega segja frá...

Pre-order pakkinn í BT - Nóg eftir (5 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég hringdi í BT rétt í þessu(15:40 - 1. des), og konan í þjónustuverinu sagði mér að það væri nóg eftir af þessum pökkum í flestum búðunum. Hún sagði að Skeifan hefði verið að fá 150 AUKAeintök rétt í þessu, eða fyrir ca. hálftíma. Þannig að samkvæmt henni ætti að vera nóg eftir :-)

In-game pet (4 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Vitið þið hvort að það sé eitthvað mikið gagn af þessum in-game pets sem eru í CE útgáfunni af leiknum. Langaði að forvitnast um það áður en maður kaupir pakkann. Er þetta bara svona til að vera kúl, eða hafa þau einhver skill og geta barist?

Digital myndavél (0 álit)

í Ljósmyndun fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég var að spá í að kaupa mér myndavél, og mig langaði að spyrja hvaða digital vél væri fín fyrir “byrjanda”. Var að spá í vélum á ca. 25-30 þúsund. Ekkert allt of mikið meira, en ég hef heyrt að Sony séu með mjög fínar digital vélar, með hverju mælið þið?

Priest class (11 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég var að lesa á útlensku forumi, að það væri gífurlega lítið af priestum í leiknum. Ætlar einhver hérna að spila priest? :-)

BT pakkinn (9 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þessi pakki á kannski að koma á morgun, minnir mig allavega af korkunum hérna fyrir neðan. En leyfið mér að spyrja ykkur, þetta er US útgáfa þá. 1. Ef maður kaupir þennan leik, verður ekkert vesen að spila hann í US frá Evrópu(og einnig eftir að EU leikurinn er kominn)?? 2. Fylgir þá key að Evrópu betunni með leiknum? 3. Hvaða máli skiptir svona yfir höfuð hvort maður kaupi þennan pakka eða Euro, fyrir utan að maður spilar á mismunandi serverum. Helst að spá í kosti og galla.

Hvað haldið þið? (7 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 5 mánuðum
http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=21DVDV1 Þarna erum við að tala um 21" sjónvarp frá Sjónvarpsmiðstöðinni, með innbyggðum DVD spilara, fjölkerfa btw. :) Og bara þetta venjulega dót, þetta sjónvarp er á 35 þúsund krónur, sem dágóður peningur. Merkið er Dantax, sem ég veit ekkert um þannig ég spyr, haldið þið að þetta sjónvarp sé algjört drasl eða er þess virði að fjárfesta í svona tæki? Ég get trúað að þetta tæki gæti verið eitthvað drasl, en mér finnst þetta nokkuð kúl græja og ákvað ég...

Ranger í HotU (7 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég var að spá í að skemmta mér yfir Hordes Of The Underdark í jólafríinu, og var að spá í að spila elven ranger eftir smá meðmæli. Ég hef verið að spá í að spila ranger, og svo vera annað hvort weapon master eða assassin. Nú langaði mig bara að spyrja hver reynsla ykkar er af þessum clössum og hvað þið hafið að setja út á þá. :D

Shut up and dance! (7 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hefur einhver séð myndbandið ‘Shut up and dance!’ sem er að finna á www.worldofwar.net - Þetta er myndband, sem allir eru að berjast en svo byrja allt í einu allir að dansa. Ég var að velta fyrir mér hvort þetta væri hægt í leiknum án þess að gera eitthvað sérstakt við leikinn, þ.e.a.s. að edita hann einhvern veginn eða eitthvað svoleiðis. Vitið þið það?

Pæling (1 álit)

í Vélbúnaður fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Segjum ef ég væri tilbúinn að eyða kannski 150 þúsund í nýja heimilistölvu, og mig vantaði ekki skjá, lyklaborð, kassa, diskadrif og þannig dót. Heldur aðallega bara örgjörva, móðurborð, skjákort, vinnsluminni og harðan disk. Hvernig tölvu mynduð þið mæla með fyrir þennan pening, eða hvað væri það besta sem ég gæti fengið fyrir 150 þúsund?

Menntaskólaverkfall? (8 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Íslenskukennarinn minn sagði mér að það væri möguleiki á að kennaraverkfall meðal menntaskólakennara yrði eftir áramót, því að samningar þeirra rynnu út í desember. Vita einhverjir aðrir eitthvað um þetta?

Hvaða gítar (22 álit)

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ok, ég hef verið að spá í 3 gítara, þetta er reyndar allt sami gítarinn en 3 mismunandi liti; rauðan, svartan og hvítan. Svo var ég að spá í með litinn, sést t.d. ekki öll fingraför á svörtum gítar? Hvaða gítar finnst ykkur flottasti gítarinn af þessum þremur? Rauður les paul custom Hvítur les paul custom Svartur les paul custom Sjálfum finnst mér eiginlega svarti flottastur, bara böggar mig með fingraförin. Svo finnst mér þessi rauði massaflottur líka. Hvíti er drulluflottur, en persónulega...

Hugmynd (1 álit)

í Tolkien fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hvernig væri að byrja að plana eitthvað skemmtilegt yfir jólin, kannski aðra greinasamkeppni, kannski ekki. En þar sem allir fara örugglega í frí frá skóla, og/eða smá frí frá vinnu, öðlast þeir örugglega smá frítíma til að sinna þessu áhugamáli svona öðru hverju. Hvað dettur ykkur í hug?

Hugmynd með korkana(endilega lesið) (6 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Þið kannist örugglega við nöldrið að ekki standi ‘ólesið’ eða ‘lesið’ fyrir aftan korkana. Og flestir vita nú þegar að lesnir korkar eru nú ljósari en hinir, og er þetta svona í staðinn fyrir að skrifað sé fyrir aftan korkinn. Nú eins og einhver af ykkur vita, eru ekki öll áhugamál með þannig liti að það sé hægt að hafa ljóst og dökkt. T.d. áhugamálið ‘Blizzard leikir’ sem ég heimsæki á hverjum degi, hefur svarta korka og hef ég því ekki hugmynd um hvaða korka ég hef lesið og hvaða ekki....

Æjh (0 álit)

í Tolkien fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Bara ef það tæki ekki svona langan tíma að skrifa greinar… þá væri maður búinn að skrifa greinar í tuga tali.

US útgáfan (7 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég spjallaði aðeins við félaga minn í morgun um muninn á US útgáfunni og European. Ég var að hugsa hvort maður ætti kannski að kaupa sér US útgáfuna frekar, hmm af hverju myndi ég gera það? Nú þá fæ ég leikinn aðeins fyrr(Þá getur maður spilað yfir jólin og svona ;-) Og síðan var ég að heyra að Frakkar og Þjóðverjar væru að taka yfir General spjallinu í leiknum(þ.e.a.s. tala bara á eigin tungumáli), á European. En með US útgáfuna væru það bara Kanar, sem maður gæti spjallað við. Nú þetta eru...

The Forgotten (5 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Þetta er nú meira helvítis kjaftæðið! Þessi mynd er algjört bull, samt geðveik bregðiatriði í þessari mynd :-)

Music123.com sendingar (4 álit)

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Mig langaði að spyrja, þið sem hafið pantað frá Music123.com… hvað tók sendingin langan tíma frá því að þið pöntuðuð? Alveg frá því að þið senduð pöntunina og þangað til að hún var tilbúin fyrir ykkur að sækja. 20 dagar? Meira eða minna?

Staða fingra á gítar (5 álit)

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég var að heyra að til lengri tíma færi það illa með hendina að spila með þumalinn ofan á hálsinum á gítar, að maður ætti frekar hafa hann til miðju bakvið. Kannist þið eitthvað við þetta?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok