Ég prófaði að leita svolítið á korkunum á undan en fann ekkert um þetta svona í fljótu bragði. Svo ég var að spá hvort þið gætuð komið með einhverjar hugmyndir um hvað er hægt að hafa á vefsíðu, eitthvað svona skemmtilegt og tilbreytilegt. Eitthvað sem fólki finnst gaman að skoða.

Ég mun opna bara svona einfalda private vefsíðu fljótlega, og verð með myndir, kvikmyndagagnrýni, fréttir(blogg?) og eitthvað fleira.

Ef þið hafið einhverjar skemmtilegar hugmyndir megið þið endilega segja frá þeim. Eða bara segja frá hvað fólk er yfirleitt með á svona private síðum. :-)