Ég er fucked up reiður í dag. Ég var í 9 tíma í vinnunni og ef þú ert að pæla í hvað það er þá er það svona blanda af leikskóla, elliheimili, félagsheimili, útlendingaeftirliti og mitt starf þarna er að hlusta á vælið í öllum. Plús að gera allt hitt. Síðan fór ég út. Og elskan, það er gluggaveður. Nístandi fucking kuldi og hvað er málið með að vindurinn á þessari djöflaeyju er alltaf á fucking móti manni? Ó, og það er ekkert til að éta því kötturinn á allt. Fucking þriðjudagar.