Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Shimotsuki
Shimotsuki Notandi frá fornöld 300 stig
=)

Keppni á Íslandi (8 álit)

í Hestar fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Á sumrin er allt morandi í keppnum; landsmót, félagsmót, firmakeppnir og fleira og fleira. Allt eiga þessar keppnir sameiginlegt að vera aðallega keppnis í gangtegundum okkar eina hestakyns. Fólki gengur vel, fær háa dóma og svo gengur öðrum illa og fær lélega dóma. Ég hef lítið séð af umræðum um þetta nema hvaða hestar taki sig vel út og hvaða hross séu slök. En þó tók ég eftir einni umræðu á Eiðfaxa.is eftir landsmót þegar talað var um sjónvarpsútsendingar frá landsmótinu og deildu ýmsir...

Reiðleiðir í kringum Fák (5 álit)

í Hestar fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Svona mestalla hestævi mína hef ég haldið til í Fáki og tel mig þekkja reiðleiðir þar nokkuð vel. Ákvað bara að pára eitthvað niður um það sem ég þekki frá eigin reynslu í þetta skiptið. Svona áður en ég fer að bulla um eitthvað annað. ;) Rauðhólarnir: Að taka svona “klassískan” rauðhólahring tekur mig svona í kringum 40 mínútur. Það er hægt að velja óteljandi slóðir þar og persónulega get ég alltaf fundið einhvern nýjan slóða til að auka fjölbreytnina þegar égfer þangað. Reyndar hef ég...

Mél (12 álit)

í Hestar fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Jæja, hvaða tegundir af mélum líkar ykkur best? Eða verst? Og af hverju? :) Ég hef prófað þónokkur mél í gegnum árin og eins og vafalaust flestir hef ég ákveðna skoðun á hvað ég vil nota og hvað ekki. Fyrst þegar ég byrjaði voru venjuleg hringamél oftast valin og eru þau nokkuð klassísk í mínum huga, ekki neinn sérstakur mínus eða plús við þau. Nota þau ennþá af og til og þá yfirleitt ef að ég er að prófa nýtt hross sem ég veit ekki mikið um. Mér finnst einnig að öllum hrossum ætti að vera...

Polo - Íþrótt konunganna (3 álit)

í Hestar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Jæja, enn eitt æðið hefur heltekið mig. Í þetta skipti íþróttin Polo. Talið er að um leið og ístöð hafi verið fundin upp hafi íþróttir sem svipar til polosins sprottið upp. Þar sem íþróttin reynir mikið á styrk, snerpu, hraða og hlýðni hesta ásamt því að vera hröð og spennandi var þessi íþrótt líklegast góð þjálfun fyrir hermenn. Fyrsta keppni sögunnar sem vitað er um fór fram milli Persa og Túrkemenista og unnu má til gamans geta að Túrkemenar þann leik. Um 1800 uppgötvuðu Bretar þessa...

"Náttúrulegar" tamningaraðferðir (5 álit)

í Hestar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Undanfarin ár hafa stórbrotnar breytingar átt sér stað hvað varðar kennslu/þjálfun dýra (og manna). Aukinn skilningur á hugsunarferli dýra og hæfni til að læra hluti hefur án efa verið einn orsakavaldur þróunarinnar. Flestar þær aðferðir sem kynntar hafa verið eru af svokölluðum “náttúrulegum” þjálfunaraðferðum (natural training) þar sem dýrin eru fengin til að vilja þjóna manni en að þeim sé ekki settur úrslitakostur og þar með “brotin” (broken). Þær aðferðir sem hafa rutt sér til rúms í...

Hestaþátturinn í Ríkiskassanum (3 álit)

í Hestar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Sá einhver þáttinn um hestana úti? Bjóst ekki við miklu þegar ég heyrði að þetta ætti að vera eitthvað um útflutning íslenska hestsins en endaði fyrir framan tækið. Það var reyndar ekki íslenski hesturinn sem hélt mér límdri heldur þessir erlendu. Ég hef verið ansi dugleg við að skoða myndir en ekkert jafnast á við að sjá þessi hross á hreyfingu. Bjóst ekki við að töltið hjá t.d. Peruvian Paso hrossunum væri með svona lágar lyftur. Minnti mig einna helst á svona lull-töltara. ;) En litu samt...

Nazgûl (0 álit)

í Tolkien fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Veit einhver hvað konungarnir hétu sem fengu hina níu hringi? Eða allaveganna hvar sé hugsanlega hægt að finna þau? Ef þau eru til, það er að segja. :-P

Afghanistan.. (2 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Eins og flestir sáu víst var eitthvað um eldglæringar yfir Afganistan síðustu nótt. Voru ýmsir fljótir að alhæfa um byrjun á stríði milli USA og hryðjuverkamannana sem eru staðsettir þar. En ég heyrði einnig að einhver leiðtogi andstöðunnar þar hefði verið myrtur af Talebönunum og sé þetta því hryðjuverkunum þessum óskylt. Hafið þið eitthvað heyrt og ef eitthvað, hvað? -Shimo
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok