Plús það náttúrulega að flotinn var alls ekkert tilbúinn. Þýski flotinn var það veikasta sem þeir áttu í stríðinu. Þeir fóru að brjóta á versalasamningunum fyrir stríð með því að þjálfa hermenn, smíða skriðdreka, flugvélar og skip en skipin voru alls ekki tilbúin árið 1939. Dönitz flotaforingi vildi ekki hefja stríðið fyrr en 1948, þá hefði flotinn verið tilbúinn. Ef þeir hefðu verið með almennilegann flota eins og bretar, hefðu þeir eflaust getað gert einskonar D-day við Bretland.