Klám er bannað á Íslandi. Það eru einfaldlega lög gegn því. Hinsvegar má auðvitað deila um hvað sé klám og hvað ekki, þó að ég haldi að það sé nokkuð óþarft, það ætti einfaldlega að afnema þessi barnalegu lög. Biskupinn er náttúrulega óttalega íhaldsamur og gamaldags, enda þarf hann að vera það í sinni stöðu. Hann segir náttúrulega að hitt og þetta eyðileggi mannlegt samfélag, klám jafnt sem trúleysi.