“Gagagúgú” eða “waaaawaaaa” er einhvað sem búast má við að Ríkisstjórnin, formaður Feministafélags Íslands, formaður Stígamóta biskup Íslands láti frá sér á næstuni miða við þá hegðun sem þessir einstaklingar hafa sýnt í fjölmiðlum undanfarið í sambandi við ráðstefnu netsjóra klámsíðna.

Þessir einstaklingar hafa greinilega ekki hunds vit á lögunum og ég fæ hroll þegar ég hugsa um það að Fólkið sem á að stjórna landinu kunni ekki sjálf lögin.

Í fyrsta lagi brá mér heldur betur í brún þegar þetta fólk fór sakaði einstaklingana sem ætluðu að sækja þessa ráðstefnu um barnaklám, vændi og mannsal. Þær ásakanir eru náttúrlega alveg út í hött og hafa enga stoð í raunveruleikanum. Og þar að auki er þetta fólk að fremja ærumeiðingar með því að segja þetta svo ef það er einhver sem ætti að fara fyrir dóm þá eru það Formaður stígamóta og Formaður Feministafélagsins.

Hitt sem mér blöskrar stórlega er það þegar Kirkjan og Biskup Íslands fara að skipta sér að þessu og Biskup Íslands sendir frá sér bréf þar sem hann segir að gera verði allt til að koma í veg fyrir að þessir umtöluðu einstaklingar fái að koma til Íslands, og svo segir hann að erótískt efni “eyðileggi samfélagið” og gera verði allt til að koma í veg fyrir dreifingu þess á Íslandi.
Eftir að ég sá þetta í fréttunum finnst mér satt best að segja æðstiklerkur Írans vera maður með meira vit en Biskup Íslands, og eins og flestir vita er hann hálfviti.

Biskup Íslands, ásamt ákveðnum stjórnmálamönnum úr Framsóknar og Sjálfstæðisflokknum, vilja semsagt brjóta samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með því að meina Evrópubúum aðgang að landinu án nokkurra ástæðna og sömuleiðis brjóta lög um frelsi einstaklingsin og stjórnarskránna með því að banna fullkomlega löglega samkomu fólks sem hefur ekkert að markmiði annað en að skemmta sér.

Já kæru hugarar, nú um þessar mundir finnst mér eins og leikskólakrakar stjórni landinu og er ég sennilega ekki einn um það.