Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hæ hæ (3 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Í hvaða skátafélagi ertu. Ég var að koma úr skátaferð þegar ég sá þessa grein um að komið væri áhugamál fyrir skáta er það ekki frábært? Já ég var einnig að pæla ætlið þið í skátaferðaleg til Thailands í janúar n.k. eða til Bretlands næsta ágúst og ef þið ætlið, ætlið þið þá að hafa eitthverjar fjáraflanir (hvernig fjáraflanir?). Ég elska skátana og vona að þetta áhugamál eigi eftir að lifa lengi :)

Þátturinn í gær :> (20 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þátturinn í gær var skemmtilegur eins og flestir þeirra. Chuay Gahn var í betra skapi eitthvern vegin í byrjun þáttarins en þau í Sook Jai meira að rífast. Svo fóru 2 konur úr Chuay Gahn að ná í vatn en villtust það var nú meira ruglið hún gamla sat bara á bátnum og lét sig fljóta á meðan hin konan þurfti að ganga upp eftir öllu í leit að vatni. Þær réru og réru og loks fundu þær vatnið ein þeirra sagði meira að segja; ,,Ef ég væri með byssu myndi ég skjóta hana fyrst og mig svo það er...

Ljót föt á tískusýningu í Mílanó (17 álit)

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Sjáið myndin sem fylgir með sjáið hvað tískan er orðin ljót geta þessir hönnuðir ekki fattað upp á eitthverju flottu varla fara stelpur/konur að labba um á brókinni eftir 2-3 ár, þetta er hrillingur. Ég ætla alla veganna að láta hönnuði svona fatna vita að ég mun ekki ganga um á brókinni niðri í bæ. Sko ég er ekki að segja að ég sé feit en ég vorkenni feita fólkinu þegar allir eru komnir í brækur þá getur það ekki verið í eins fötum því það vill ekki hafa lafandi spik út um allt. Ég bara...

Dauði sjálf síns (4 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hæ, Hæ þetta er saga sem ég skrifaði fyrir tveim árum ég er ekkert sérstaklega mikið skáld en mig langar samt að sjá álit ykkar á henni. Plís ekki gangrýna stafsetningu. Dauði sjálf síns Ég sá vel að þetta var ekki lifandi mannvera hún var eitthvað svo hvít og drungaleg eða annars drungaleg var varla rétta orðið. Ég stóð rétt hjá henni eða honum ég sá ekki hvort kynið þetta var útaf myrkrinu sem var inn í þessu sundi. Veran stóð bara þarna og horfði á eitthvað fyrir aftan mig eða ég leit...

Því skólinn, því ég? (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ok þó ég sé 15 þá er ég ekki stór að mati margra. Krökkunum í 1. bekk finnst ég stór en ég er það ekki. Ég er einn og fimtíu á hæð og nokkuð feitur sem sagt dvergur. Ég geng inn ganginn i skólanum hann er dimmur og skítugur eins og vanalega. Ég geng fram hjá krökkunum í 5.bekk þau flissa: ,,sjáðu þessi er í 9.bekk“. ég þoli þetta ekki lengur ég hleyp fram hjá þeim en fatta að það er kannski ekkert svo gáfulegt að hlaupa þá verður maður bara kallaður grenjuskjóða sem hleypur frá vandamálum....

Horfir þú á friends af því að... (0 álit)

í Gamanþættir fyrir 21 árum, 7 mánuðum

Hvað finnst ykkur? (27 álit)

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég er 12 ára að verða 13 ára stelpa. Allar stelpurnar í bekknum mínum eru byrjaðar með strák nema ég og vinkona mín, mig langar það. Það finnst bara öllum ég svo halló því ég er i íþróttabuxum og magabol en ekki þröngum galla buxum úr Thopshop. Finnst ykkur að ég ætti að ganga í g-string og þröngum buxum og hvernig á ég að greiða mér tagl, liðað hár, tígó (nei það er ljótt) Hvað finnst ykkur?

Getur enginn sent inn grein (1 álit)

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Það er mánuður síðan einhver sendi inn grein! Sendið eitthvað¨!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok