Þátturinn í gær var skemmtilegur eins og flestir þeirra.
Chuay Gahn var í betra skapi eitthvern vegin í byrjun þáttarins en þau í Sook Jai meira að rífast. Svo fóru 2 konur úr Chuay Gahn að ná í vatn en villtust það var nú meira ruglið hún gamla sat bara á bátnum og lét sig fljóta á meðan hin konan þurfti að ganga upp eftir öllu í leit að vatni. Þær réru og réru og loks fundu þær vatnið ein þeirra sagði meira að segja; ,,Ef ég væri með byssu myndi ég skjóta hana fyrst og mig svo það er ástæðan yfir því að ég geng ekki með byssu" af þessari setningu að dæma heyrist mér að þau hafi verið orðin soldið þreytt á þessu veseni.
Sook Jai var með uppsprettuna rétt hjá sér en þurfti að byggja skýli. Stephanie sat hjá á meðan og eldaði matinn en hinn gaurinn (mann ekki hvað hann hét sat bara). Svo komu keppnirnar Sook Jai vann fiskinet og fleira í verðlaunakeppninni og unnu líka í hinni keppninni
Þau voru líka rosa góð við Helen sem átti 20 ára brúðkaupsafmæli þau sungu fyrir hana ofl.
Á þinginu var Tanya send heim úr Chuay Gahn.