Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Bubbi - Ást (2 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Hef ekki séð þráð um þetta hérna áður, biðst innilegrar ef svo er. En mig langaði að spyrja hvað ykkur, sem hafa hlustað á nýju plötuna hans Bubba, Ást? Einstaklega lýsandi texti fyrir það sem hann hefur greinilega gengið í gegnum, en aðallega bara falleg tónlist.

Ósanngjarnt líf (43 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Af hverju þarf allt að snúast manni í óhag þegar maður heldur að manni hafi gengið vel. Ég var í söguprófi í dag, þurfti að lesa hálfa bók um sögu Rómar og það var engin barnaleikur! en ég las og las og las… svo tók ég prófið í síðasta tímanum alveg búin að vera að fara á taugum yfir því að muna ekki neitt. Síðan kemur prófið og ég get allt, þetta voru rigerðarspurningar og aðeins fjórar talsins. Ég fór óskaplega ánægð og glöð heim úr skólanum, svo viðbjóðslega ánægð því loksins gekk...

Utópía (20 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Utópía, lang besta lagið í keppninni, finnst mér, hvað segið þið?

Smá vandræði (2 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Veit einhver hér hvort hægt er að breyta myndum yfir á JPEG form og hvernig þá. Mig vantar að breyta mynd sem tekin er í webcam yfir í JPEG, er það hægt?

Játningar (7 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Fann hérna á netinu svona confessions síðu, þar sem fólk póstar alls kyns vitleysu sem það segist hafa upplifað, þessu er svo skipt í nokkra flokka en þetta er alveg sjúkt fyndið. Ég fékk t.d. eina “random confession”…haha One night, I was on a date with my boyfriend, and he was tickling me so hard, that I farted on his face. I tried to play it off the whole time, but the rest of the night was awkward. http://www.b2.is/?sida=tengill&id=145923

.?. (4 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Voru einhver dulin skilaboð í þræðinum sem hét: “Ó þú mykla sækú” sem ég ekki sá og var tekin. Bara vegna þess að ég varð vör við það að ég gat ekki skoðað svar sem var í skilaboðaskjóðunni minni, fór bara beint á forsíðu.

Á einhver? (29 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Á einvher hér góðar glósur úr setningafræði, helstu hugtök og svoleiðis? Vil ekki að það fari neitt framhjá mér, þess vegna spyr ég. Óska ekki eftir neinu nema almennilegum svörum, takks

Lögreglan með leiðindi (26 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Mér finnst þetta alveg fáránlegt, mega menn nú ekki fagna lengur, sama hvort það er ákvaflega eða fyrir framan andstæðingana, algjör hneysa. Lögreglan ekki hrifin af hegðun Gary Neville Gary Neville fagnar fyrir framan stuðningsmenn Liverpool í gær. Lögreglan í Manchester hefur skrifað enska knattspyrnusambandinu bréf vegna hegðunar Gary Neville, fyrirliða Manchester United, þegar Rio Ferdinand skoraði sigurmark United gegn Liverpool á Old Trafford í gær. Þegar Ferdinand skoraði hljóp...

Lykilorð? (3 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Hvernig get ég breytt lykilorðinu mínu hérna á huga?

Gæfuspor ljúfu (2 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Ljúfa, litla, besta skinn þitt hörund, fagurt sem lítillar snótar. Þú ert ljósgeislinn og litli engillinn minn, Fallega sálin sem hjarta mitt mótar. Þitt bros gefur mér bros, því þú ert hamingjan í brjósti mér. Vertu hjá mér alla daga litla, ljúfa, leystu mig úr dimmu dagsins hrjúfa. Hvert gæfuspor þú tekur, þá birtir því allt skaltu fá sem þú misstir.

Gettu betur (111 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
í kvöld eigast/áttust við í Gettu betur, Borgarholtsskóli og Verkmenntaskólinn á Akureyri Menntaskólinn í Reykjavík og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Kvennaskólinn í Reykjavík og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum Borgarholtsskóli tók þetta með 16-8 Menntaskólinn í Reykjavík rústaði auðvitað Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 26-5! en þess má geta að við vorum með 17 stig í fyrsta lið keppninnar þar sem FG náði fjórum stigum, já bust. Svo er viðureign Borgó og Vestmannpeyja eftir Það var alveg...

Maður gæti grátið! (25 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Sá þetta á b tveimur, eitt það fyndnasta sem ég hef séð, afar skrautlegt. Eru þetta bara Íslendingar sem falla svo vel undir álög eða? :') http://www.b2.is/?sida=tengill&id=142787 Ég smellti bara á url takkann, kannski virkar það..

Tómatsósu djöfull (91 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Djöfull hata ég helvítis fólk sem treður alltaf þessari óegðslega viðbjóðslegu tómatsósu á allt! Maður þarf að biðja um það að helvítis drullan sé tekin af hamborgaranum svo kemur maður heim með draslið og þá þá lekur þetta andskotans ógeð af hreina odtborgaranum sem ég bað um, helvítis ógeðslega tómatsósu drullu helvíti

Efnafræðipróf! (5 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Er einhver hér sem hefur verið í bókinni Eðlis- og efnafræði, Orka og umhverfi. Eftir Rúnar S. Þorvaldsson? Ef svo er þá væri ég til í að spjalla við þig, ég er nefnilega að fara í próf úr þessari bók en veit ekkert hvað ég á að læra eða neitt, kennarinn leggur ekki sérstaka áherslu á neitt og er mjög óskipulagður. Ef það er einhver þarna sem gæti lagt mér lið þá væri það frábært.

"Fagra veröld" (1 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Svo mánablíð og björt sem mjöll, ó, björt sem mjöll skein ásýnd þín. Og hingað komstu kvöldin öll, og kvöldin öll var drukkið vín. Og stundin leið við og ljóð og ást, við ljóð og ást, ó glaða stund, og ljósu armar, liljumund. Ó, ljúfa stund, unz gæfan brást! En hví skal trega horfinn dag, sem heiður, bjartur framhjá rann? Og hví skal syrgja ljúflingslag, sem lífsglaðast í hjörtum brann? Um ást og vín bað æskan þín, og alls þess naut sá þúsundfalt, sem lifað hefur líf sitt allt einn ljúfan...

Hjartamál (0 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Í hjartanu er litadýrð úr lífsins laufi Sem hverfur ei þó árin hlaupi Á þeim stað einum og sér Er hamingjan, ástin Sem blóstrar í hjarta þér.

The half-blood Prince - SPOILER! (13 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Jæja, þá lauk ég sjöttu bókinni um helgina, ég var svo spennt yfir henni að ég beið í þrettán tíma á föstudagskveldið og toppaði mig síðan í fyrra. En alla vega, ég byrjaði að lesa bókina um leið og ég fékk hana og ég kláraði hana á sunnudag. Ég verð að segja það að þessi bók er alveg ótrulega mögnuð og vel skrifuð, það er það sem tók mig mest, hún fléttar þetta svo vel saman hún Rowling svo það er virkilega hægt að lesa þetta, efnið er alltaf jafn skemmtilegt og ég hélt ég myndi öskra eða...

Minningar (10 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég geng um göturnar og í nóttinni er ég ein, þessari dimmu nátt sem hylur allt sem úti bærist. Nú er allt hljótt, allt kyrrt í langri þögn að næturþeli. Ég geng eftir stígnum að Fossvogsdal og læt hugann reika, um stjörnur og loft, ég finn að vorið fer brátt að koma. Loftið ilmar af grósku trjáa og blóma sem brátt fara að blómstra. Ilmurinn leiðir huga minn langt í burtu þangað sem allt er bjart, þar sem sólin skín við fjallsrætur og himinnin er heiður og blár. Þar sá ég þig í fyrsta sinn, í...

Minningar (Smásögukeppni). (13 álit)

í Manager leikir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég geng um göturnar og í nóttinni er ég ein, þessari dimmu nátt sem hylur allt sem úti bærist. Nú er allt hljótt, allt kyrrt í langri þögn að næturþeli. Ég geng eftir stígnum að Fossvogsdal og læt hugann reika, um stjörnur og loft, ég finn að vorið fer brátt að koma. Loftið ilmar af grósku trjáa og blóma sem brátt fara að blómstra. Ilmurinn leiðir huga minn langt í burtu þangað sem allt er bjart, þar sem sólin skín við fjallsrætur og himinnin er heiður og blár. Þar sá ég þig í fyrsta sinn, í...

Harry Potter ólýsanleg upplifun (28 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Mér leist svolítið vel á þessa skemmtilegu grein sem birtist hérna fyrir stuttu um reynslusögu Catium af Harry Potter og skammaði ég sjálfa mig fyrir að hafa ekki látið mér detta þetta í hug sjálfri hehe Bara svona vegna þess að ég hef unun af því að skrifa og tala um Harry Potter, galdrastrákinn góða. Mín saga byrjar svolítið eins og hennar Catium en ég bið ykkur um að lesa allt til enda þó að svo sé. Ég á alveg yndislega frænku sem er nafna mín og guðmóðir og ein jólin, mig minnir að það...

Í austri þar sem sólin rís (2 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Austan við fjöll og firði rennur fljótið þar sem sólin rís, við ár og bakka þar sem blómin dafna og grasið bærist í kyrrðinni hægt. Þar leikur leikur loftið við fjöru og stein “Og fegrar ljúfa lækinn sinn”. Í austrinu fagra þaðan sem geislarnir skína liggur fegurðin um sveitina bjarta. Þar dvelur kyrrðin í rósemis dvala og geymir fegurð ósnortinna haga. Í austrinu er fegurðin Sem blóstrar gleði í mínu hjarta. ———————————– Ég er alltaf að grafa eitthvað upp úr skúffuni síðan í grunnskóla og...

Myrkur dans (5 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Það er myrkur í myrkrinu skín ljós það skín þó ekki skært Heltekinn dreginn í dans, vafin myrkraörmum sveiflast ég til og frá, upp og niður, ég stíg við, vil ekki. Því get ég ekki staðið kyrr, Stöðug. Ég vil birtu eina og gleðivísur ekki trylltan dans á þyrnirósum Því get ég ekki komist úr því myrkri sem sveipar sínum örmum þétt og fast um mína veiku sál og dregur mig í trylltan dans. Ég vil ljósið, ég vil ró, ég vil frið, sálarfrið og næturró. Ég vil í ljósinu lifa stinga ekki við, kvíða...

Eitthvað sem er minnst á aðeins einu sinni... (10 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þegar ég byrjaði að lesa Potter fyrir einhverjum árum þá var alltaf eitthvað að bögga mann, einhverjar spurningar og eitthvað sem manni langaði að vita. Ég skrifaði eitthvað úr fyrstu bókunum sem mig langaði að fá svör við. Ég man ekkert núna nema eitt og það var að í fyrstu bókinni þá fer Harry og bekkurinn hans og bekkurinn hans Malfoy's í tíma hjá henni Madam Hooch. Þetta var kennslutími og tuttugu kústar voru handa krökkunum. Það sem ég skil ekki er af hverju aldrei er minnst á þetta...

Ó tími ó vor glatt vor (2 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég var að blaða í gömlum bókum sem ég á og rakst á hefti af ljóðum sem ég skrifaði um það leyti sem ég var í ellefuárabekk. Mér þylir soltið vænt um þau en ég kemst ekki hjá því að hugsa hvað ég var óskaplega öðruvísi þegar kom að þegar ég var yngri en mér fannst gaman að dunda mér við þetta ein og oftar en ekki var niðurstaðan eitthvað dapurt eða jafnvel óskiljanlegt og skrítið kannski miðað við ellfu ára stúlku, veit ekki. Alla vega, mig langaði að setja hér inn eitt lítið af þessum sem ég...

Fyrirboðar og annað slíkt. (39 álit)

í Dulspeki fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég veit ekki hvort það gegnir einhverjum tilgangi að setja þetta hérna inn en mig langaði samt að athuga þetta. Það er þannig með mig að núna undanfarið eða í marga marga mánuði, núna á þessu ári og fyrir jól og það, þá hef ég lent í því að standa sjálfan mig að því að muna eftir því að hafa hugsað um og séð fyrir mér eitthvað sem er að gerast eða ég er að sjá. Þetta er þannig að ég er ekki að hugsa um neitt sérstakt bara að horfa eitthvert og ég fer að hugsa ótengt umhverfinu í kringum mig...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok