Það er myrkur
í myrkrinu skín ljós
það skín þó ekki skært

Heltekinn
dreginn í dans,
vafin myrkraörmum
sveiflast ég til og frá,
upp og niður,
ég stíg við,
vil ekki.

Því get ég ekki staðið kyrr,
Stöðug.

Ég vil birtu eina og gleðivísur
ekki trylltan dans á þyrnirósum

Því get ég ekki komist úr því myrkri
sem sveipar sínum örmum þétt og fast
um mína veiku sál
og dregur mig í trylltan dans.

Ég vil ljósið,
ég vil ró,
ég vil frið,
sálarfrið og næturró.

Ég vil í ljósinu lifa
stinga ekki við,
kvíða ekki hverju spori
Við hvert horn þora að líta

að lifa,
að leita,
að sjá.

Ég vil birtu eina og gleðivísur
ekki trylltan dans á þyrnirósum.

Takast á við og upplifa
Nýjan bjartan dag.