Hef verið Tinna aðdáandi frá því ég man eftir mér, elska bækurnar og þættina (með Þorsteini og Felix). Þegar ég frétti af því að það ætti að gera bíómynd eftir Tinnabókunum tók ég því fagnandi, en um leið var ég kvíðinn því að myndin næði ekki að halda í sama andrúmsloft sem er yfir bókunum/þáttunum, og svo auðvitað að leikararnir myndu túlka karakterana á allt annan hátt en ég er vanur. Fór hikandi en um leið spenntur á hana í bíó, og ég er alveg eftir mig. Hún stóðst allar mínar væntingar...