Já, einmitt..! Mér finnst eiginlega sorglegra að bækurnar séu að verða búnar heldur en að ef Harry dæi.. hehe. Þetta er samt svo skrýtið.. ég meina, kennarinn minn las bækur 1-3 fyrir bekkinn alltaf í nestistímanum í svona 2-3 bekk, svo kom nýr kennari í fjórða bekk og hann las bók nr 4 fyrir okkur.. Síðan þá hefur Harry Potter alltaf verið svona ‘aðal bækurnar’. Get lesið þær aftur og aftur, svo var alltaf frekar mikil Harry Potter umræða í bekknum mínum og svona.. og núna er svo bara allt...