Hérna koma úrslitin, 3 vikum of seint á ferð. Er þetta algjörlega mér og fantasiu að kenna og tökum við fulla ábyrgð á þessu. Byðst ég afsökunar á þessari töf fyrir okkar hönd… En nóg af gráti og gnýsti tanna, skellum okkur í úrslitin. Þau voru reiknuð þannig út að kosning notenda naut 60% vægis en kosning dómnefndar sem ég, fantasia og aesa skipuðu naut 40% vægis.
Ákveðið var að birta 4 efstu sætin og án frekari orðalenginga birtast þau hér:

1. Ævintýri á jólanótt - Gulla369Griz
2. Tími fyrirgefninga – Adelene
3. Viðurkenndar tilfinningar - Gulla369Griz
4. Different Christmas – svanaerla

Öðru sinni vinnur töfra penninn hún Gulla369Griz þótt ótrúlega mjóu hafi munað að þessu sinni. Um leið og við óskum henni til hamingju hvet ég alla til þess að æfa sig áfram í því að skrifa og reyna að velta henni úr sessi í næstu keppni.
En ég vill enda þetta á að óska Adelene, arja, Gulla369Griz, svanaerla og kylja til hamingju og þakka þeim fyrir þáttökuna!
Voldemort is my past, present and future.