Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Merenwen
Merenwen Notandi síðan fyrir 16 árum, 9 mánuðum 148 stig
I don't believe in low fat cooking

Aldo (1 álit)

í Tíska & útlit fyrir 14 árum, 3 mánuðum
er einhver með umboðið fyrir Aldo á íslandi eftir að búðin hætti? eða kannski einhver búð sem er með vörur frá þeim ?… sakna þessarar skóbúðar ekki lítið takk :)

vá hvað ég hata Rúv (17 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 3 mánuðum
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/12/10/gjald_vegna_ruv_verdur_17_900/ ég horfi ekki einu sinni á sjónvarp… sjónvarpið mitt er búið að vera bilað í marga mánuði og fyrir það horfði ég eingöngu á sjá einn.. og nú ætla þessir fasistar að láta mig borga 18Þ fyrir ömurlega dagskrá sem ég horfi ekki á… fannst það skárra með afnotagjöldin…

strawberry daquiri (5 álit)

í Djammið fyrir 15 árum, 3 mánuðum
veit einhver hvar er hægt að fá almennilegan Daquiri í miðbæ reykjavíkur….

graflax (1 álit)

í Matargerð fyrir 15 árum, 3 mánuðum
hæ hæ.. er einhver með sniðuga hugmynd af graflaxs- forrétti fyrir mig.. eitthvað annað en ristaða brauðið og sósan.. kærar þakki

ódýrast (12 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 4 mánuðum
jæja…veit einhver hvar er ódýrast að fara með hælaskóna sína í viðgerð, þ.e. að láta setja nýtt undir hælinn.. finnst tæp 2þ. soldið dýrt fyrir eitt par hjá gæjanum í kringlunni..

krullur (8 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 4 mánuðum
vitiði hvort Anna á Gel sé farin að klippa einhversstaðar eftir að Gel lokaði… vantar manneskju sem kann að klippa krullur.. þ.e. segir t.d. ekki “ á ég ekki að slétta hárið á þér áður en við klippum það?” :)

kjóllinn í innlit útlit (6 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 5 mánuðum
veit einhver hvar er hægt að fá kjólinn sem þær voru að tala um í síðasta innlit útlit… jafnvel vefsíðuna ? sá sem reddar þessu fær nafnbótina “hetja dagsins” :)

helvítis strætó (43 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 7 mánuðum
var að komast að því að draslkompaníið sem Strætó bs. er hefur enn og aftur tekist að ganga fram af mér og gera mig pirraða… eftir að hafa sætt mig við oft illa lyktandi og nær alltaf seina vagna í fjögur ár. hversu oft ég haf staðið í skýlinu og vagninn minn keyrir fram hjá án þess að stoppa hef ég ekki tölu á… en þrátt fyrir allskonar mótbárur og jafnvel dónaskap af hálfu starfsfólks sem ég hef þurft að þola, þá hef ég aldrei keypt mér bíl. nú hefur Strætó bs. tekið á það ráð að henda...

HBP orphanage (5 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 7 mánuðum
ég var að horfa á þennan trailer http://www.worstpreviews.com/trailer.php?id=561&item=2 og eitt truflaði mig soldið… nú er ég búin að lesa bækurnar oftar en ég hef tölu á og mér hefur alltaf fundist að munaðarleysingjahælið væri afskekkt og meira gloomy en ekki inní miðri London.. er ég ein um þetta ? Bætt við 8. ágúst 2008 - 00:11 fann þetta í bókinni… úthverfi london ætti að vera staðurinn…. *úps skammast mín smá*

Uglu vesen (34 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 7 mánuðum
þið sem eruð að byrja í HÍ…. er ég ein um það að lenda í vandræðum með að skrá mig inn í ugluna með aðgangsorðinu sem þið fenguð… er orðin mjög pirruð á þessu

get ekki beðið (21 álit)

í Rómantík fyrir 15 árum, 10 mánuðum
ég veit þetta er ótrúlega tilgangslaus þráður en ég er svo spennt… er að flytja í tvo mánuði til útlanda með ástinni minni… bara við tvö og ekkert annað að gera nema njóta lífsins :D get ekki beðið :)

Scandinavian Tattoo Magasine (9 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 15 árum, 10 mánuðum
nýjasta tölublað Scandinavian Tattoo Mag. er komið í Mál og Menningu :D ég fékk því miður bara 10 eintök þannig að fyrstur kemur fyrstur fær njótið vel :)

súkkulaði bjór (4 álit)

í Matargerð fyrir 15 árum, 11 mánuðum
mig dreymdi súkkulaði bjór í fyrrinótt… hann var rosalega góður og dósirnar fjólubláar. er þetta fyrirbrigði bara til í draumum mínum ?

ráð - herra eða frú? (18 álit)

í Stjórnmál fyrir 16 árum, 1 mánuði
hvaða skoðun hafið þið huganotendur á þessari tillögu Steinunnar Valdísar, ásamt fleiri alþingiskonum, um að taka upp starfsheitið “Ráðfrú” til jafns við hið eldra heiti “Ráðherra”? persónulega finnst mér þetta kjánalegt, óþjált orð sem dregur jafnréttisbaráttuna frá því sem hún á að snúast um, sem að mínu mati er ekki það að kvengera embættisheiti. við þetta mætti bæta að ég spurðist fyrir í mínu nánasta umhverfi og á vinnustað og ég fann ekki eina konu sem var hrifin af þessu uppátæki...

myndakorkur (4 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 3 mánuðum
af hverju tekst mér aldrei að senda inn myndir…. þetta dót hatar mig…

íbúðir í frakklandi (1 álit)

í Ferðalög fyrir 16 árum, 3 mánuðum
hæ hæ, ég og kærastinn minn stefnum á það að eyða næsta sumri í suðurfrakklandi spurningin er bara hvernig sé best að verða sér út um íbúð…. ekki hefur eitthvert ykkar einhver ráð takk takk :)

það var þetta með ástina (9 álit)

í Rómantík fyrir 16 árum, 3 mánuðum
ég rakst óvart á þetta blogg þar sem kona talar um reynslu sína af ástinni. hún vakti mig til umhugsunar um ástina… ótrúlega falleg grein sem mig langaði bara að deila með ykkur http://www.yr.is/blogg.php?id=584

jólauppskriftir (2 álit)

í Matargerð fyrir 16 árum, 4 mánuðum
hvernig hljómar það að hafa jólatengda uppskriftasamkeppni hérna, svona fyrst það er farið að líða að jólum :D

10 sekúndur (4 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 5 mánuðum
lyktin af hárinu, áferð varanna, að strjúka fingurgómunum mjúklega, …varlega eftir enninu, milli augnanna og í átt, að nú hálfopnum vörunum. Augun lygnd aftur andardráttur þinn örlítið ákafari… kossar mínir á kinnum þínum

endurreisn helvítis (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 5 mánuðum
endurreisn helvítis eftir Leo Tolstoj. Verð: 25 aurar. Útgefin á Akureyri nítjánhundruð og fjögur. Kostnaðarmaður og prentari Oddur Björnsson Bragi Ólafsson Fjórar línur og titill smekkleysa 2007 eitthvað við þetta sem heillaði mig :)

orð þín.. (1 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 5 mánuðum
þú veist ekki, þig grunar ekki einu sinni, gætir ekki gert þér í hugarlund, hve mikið þetta snerti mig hvestu djúpt það risti hvernig mér leið eftir þessi orð. Það muntu aldrei vita… því það er eins og skorið á böndin, og ég fyndi hvort sem er aldrei orðin, í óreiðu huga míns, sem þú skapaði

án titils nr. 479 (6 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Ég sakna þín, en samt ekki þín Heldur þess sem þú framkallar í mér Sakna handa þinna en samt ekki þeirra Heldur rafstraumsins sem þær senda niður bak mér Sakna vara þinna, en ekki varanna Heldur hvernig kossar þeirra vekja hungur mitt Sakna ekki orðanna sem þú notar Heldur þess hvernig þau koma mér í annarlegt ástand Sakna líkama þíns ekki því hann leggst fullkomlega að mínum Heldur vegna þess hve hlýr hann er sakna augna þinna en ekki vegna dýptar þeirra heldur hvernig þau horfa á mig. Ég...

hvar...? (4 álit)

í Fimleikar fyrir 16 árum, 8 mánuðum
ég er alger n00b í fimleikum, en hef alltaf dreymt um að æfa en þar sem ég ólst upp úti á landi, þar sem ekkert í áttina var í boði, þá fórst allt slíkt forgörðum :( nú er ég orðin 19 og langar ennþá jafnmikið til að æfa ( er í fínu líkamlegu formi) er einhver von fyrir svona “gamla” geit eins og mig?

franz ferdinand (10 álit)

í Rokk fyrir 16 árum, 8 mánuðum
eru fleiri spennti en ég? http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1281463 fyrri tónleikarnir þeirra í kaplakrika voru geðveikir :D

fjölnir (17 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 8 mánuðum
nú er ég voða illa upplýst, það eru komin 4 ár síðan ég fékk mér síðast tattoo og það var hjá fjölni, veit einhver hvort maðurinn er fluttur í enn eitt skiptið eða bara almennt hættur… langar að fara að drífa í að bæta við mig :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok