Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Memnoch
Memnoch Notandi frá fornöld 50 ára karlmaður
492 stig

Fyrsta vika í ICSN! (9 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Fyrsta vikan í ICSN er komin upp, endilega hafið samband við mótherja ykkar til að allt gangi vel fyrir sig. [.Hate.]Memnoch ICSN admin

Staða á ICSN (19 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Núna er staðan á ICSN að skýrast. Óneitanlega hafa orðið nokkrar ófyrirsjáanlegar tafir, en nú styttist í að þetta smelli allt í gang. Nokkrar breytingar hafa verið á reglunum, sú stærsta sú að eingöngu verða spiluð de borð því þau henta mun betur í klan mödds. Reglurnar verða uppfærðar í kvöld eða á morgun og þá sést þetta allt betur. En schedule-ið er tilbúið og fer online í kvöld, og ef allt gengur að óskum þá fara server-arnir online á morgun. Þá þurfum við nokkra daga í að testa þá og...

Reglur fyrir ICSN (18 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Nú eru reglurnar fyrir ICSN komnar upp. Eins og er þarf að smella á skráningarlinkinn á www.counter-strike.is en þar eru linkar yfir á skráninguna, skráð lið, reglurnar og einnig er hægt að sækja það þau nýju borð sem verið er að athuga að nota í deildinni. Endilega sækið nýju borðin og skoðið þau vel. Borðin ættu að vera komin upp á Test server [.Hate.] 212.30.198.92:27025. Undirbúningsvinnsla fyrir deildina gengur vel og ætti nú að fara að styttast í að hún hefjist. Búast má við að sjá...

ÍCSN - Íslenska Counter-Strike Netdeildin (17 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Update 2 Nokkur klön hafa bæst við frá síðasta update-i og eru skráð klön nú orðin 18: [3D] [.C4s.] |D| [.DRAKE.] [ds] [-ESF-] [FreeFrags] [GGRN] [.Hate.] [-IRA-] [KWSN] [.Love.] [.LSD.] [-=NeF=-] [Rs] [.Saints.] [TVAL] [VL] Skráningunni verður svo lokað á miðnætti mánudaginn 8. janúar næstkomandi. [.Hate.]Memnoch ICSN admin

Netdeild - update! (27 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þegar þetta er skrifað hafa 13 íslensk CS klön skráð sig til leiks. Það eru eftirfarandi klön: [3D] |D| [ds] [-ESF-] [FreeFrags] [.Hate.] [-IRA-] [KWSN] [.Love.] [-=NeF=-] [Rs] [.Saints.] [VL] Enn eru einhver íslensk klön sem hafa ekki skráð sig og hvetjum við þau til að gera það sem fyrst. Því fleiri klön sem skrá sig, því fleiri leik fá allir út úr þessu, og þar með vonandi meiri skemmtun. [.Hate.]Memnoch

Netdeild og mót á vegum Counter-Strike.is (19 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Í tilefni nýs árs kynnir Counter-Strike.is í samvinnu við Íslandssíma og Tölvudreifingu nýja netdeild í Counter-Strike og mót. Netdeildin mun hefjast upp úr miðjum janúar en skráning er nú þegar hafin. Counter-Strike.is kemur til með að bjóða upp á netþjóna til útláns sem einnig verða notaðir í netdeildinni. Endanlegar reglur verða settar upp innan skamms, en við hvetjum öll íslensk klön til þess að taka þátt. Fyrsta mót Counter-Strike.is verður síðan haldið í byrjun febrúar og mun skráning...

Ný heimasíða Sororicide (7 álit)

í Metall fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hin nýlega endurvaka rokksveit Sororicide hefur nú opnað nýja heimasíðu. Hana er að finna á slóðinni http://www.sororicide.is en fyrir þá sem ekki vita var Sororicide starfandi á árunum 1990-1994 en var endurvakin núna síðastliðið vor. Hljómsveitin er sem stendur í æfingarbúðum og stefnir á tónleikahald með nógu af nýju efni í vetur.

[.Hate.] serverinn fluttur. (0 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Við viljum benda fólki á að [.Hate.] serverinn hefur er kominn á annað port en áður og er núna á 212.30.198.91:27015. Endilega kíkið inn, þessi server er með ný mjög skemmtileg borð, friendly fire ON, chase cam ON og er ekki monitoraður af ifrags, þannig að enginn þarf að vera hræddur um skorið sitt :)

Ný CS borð á [.Hate.] servernum! (1 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Nú er búið að uppfæra [.Hate.] serverinn (212.30.198.91:27020) með fimm nýjum CS borðum, cs_alpine, cs_beirut, cs_cairo, cs_deadcalm og cs_siege_apc2. Það er hægt að download-a öllum þessum borðum á [.Hate.] heimasíðunni (http://hate.simnet.is) sem [.Hate.]Map Pack 2. Kíkið endilega á þessi borð og látið sjá ykkur á [.Hate.] servernum.

cs_dtown á [.Hate.] síðunni! (7 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Nú er búið að setja nýja mappið hans [.Hate.]Nazgul upp á [.Hate.] heimasíðunni (http://hate.simnet.is) og hvet ég alla til að skella sér inn og sækja það. Eins og áður sagði verður mappið sett upp á [.Hate.] servernum á morgun og serverinn opnaður fyrir alla klukkan 22:00. Við vonumst til að sjá sem flesta.

Fyrsta íslenska CS mappið!!! (16 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Núna á miðvikudaginn verður brotið blað í sögu Counter-Stike á Íslandi, en þá kemur út fyrsta íslenska CS mappið, cs_dtown, en það er [.Hate.]Nazgul sem gerir borðið af einstakri snilld. Það hafa eflaust margir heyrt um þetta borð og sumir jafnvel séð það á þeim tíma sem þetta map hefur verið í vinnslu, því að það er óhætt að segja að þetta hafi verið “million years in the making!” Nazgul segir sjálfur að þetta sé aðeins fyrsta mappið frá honum og hann sé nú þegar byrjaður á öðru. Mappið...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok