Þess má geta að ég er ekki sá sem þú svaraðir upphaflega, en ég var bara að benda á hversu glataður ferðamáti strætó er. Hvernig finndist þér að þurfa að lifa við tilhugsunina að þú ert að sóa amk. einni klukkustund á dag í strætóferðir, þá er ég bara að tala um tímamismuninn á bílferðum og strætóferðum. Það er það sem pirrar mig mest, ásamt því hvað þetta er óþægilegt miðað við bílinn.