Kynjahlutfall þarf engan veginn að vera algerlega jafnt, en ég trúi því ekki að kvenkynið sé svo miklu veikara kyn að núverandi kynjahlutföll séu rétt. Núna eru 31.7% þingmanna konur, sem er lægra hlutfall en það var eftir kosningar '99. Ég skil hinsvegar ekki þetta tal þitt um að hundsa atkvæðafjölda. Þráðarhöfndur kvartaði sjálfur yfir því að kynjahlutfall á lista VG væri ójafnt, þar sem að enginn hefði verið færður til um sæti vegna kynjakvóta, þe. atkvæðin réðu öllu um niðurstöður prófkjörsins.