Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Lily2
Lily2 Notandi síðan fyrir 19 árum, 5 mánuðum 33 ára kvenmaður
1.940 stig

Lauganesskóli (6 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Halló… Mig vantar smá hjálp hérna, hefur Lauganesskóli heimasíðu. Mig langar að vita það af því að þar er víst fjarkennsla í sænsku. viljið þið hjálpa mér? Búin að prufa lauganesskoli.is og skrifa Lauganesskóli inn í leit.is Hjálp?

Herra Síli (0 álit)

í Fiskar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég var í náttúrufræði verkefni í dag, og það var lífverusöfnun, ég fann síli, hvað borða síli eiginlega, ég ætla að skila sílinu en langar að vita hvað síli borða. Ég lét sílið heita “Herra Síli”

Íslenskupróf, veik og sterk lýsingarorð :( (6 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Sko, ég ruglast alltaf á hvor er sterk og hvor er veik. Ég veit að ef maður setur orðin í eignarfall þá á maður að geta fundið það út… T.D. Ljótur bíll ljótan bíl ljótum bíl til ljóts bíls og svo er líka: svört kráka svarta kráku svartri kráku svartrar kráku Hvor er veik og hvor er sterk? í seinustu línu á að enda á samhljóða/sérhljóða og þá er hún sterk, bara man ekki hvort það er ef það er sérhljóði aftast eða öfugt, hvor af þessum lýsingarorðum er sterk? Týndi glósunum um þetta. Með von um hjálp.

Kosning (5 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Æ,Æ, ég ætlaði að kjósa Lettland en inneignin mín var búin, þá fór ég inn á einkabankann og lagði inn fimmhundruðkall, en nei, alveg sama hvað ég flýtti mér mikið þá náði ég ekki fyrr en svona fimm sekúntum of seint. Rosalega pirruð, vona samt að Lettland vinni. Svo vona ég líka að þið hafið ekki verið jafn óheppin og ég.

Eurovision (30 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Oh, ég er ógeðslega pirruð, við höfum gott lag einu sinni til tilbreytingar, en nei, við komumst þá ekki áfram. Og oj bara hvað hún var í ljótum appelsínugulum fötum, ég var alveg bara ojbara þegar ég sá að hún notaði þennan búning þrátt fyrir að hann sé skelfilega ljótur. *tvær miðlungsstórar eldingar skjótast út úr eyrunum*.

Virkir notendur. (7 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 19 árum
Thetta er svo dautt áhugamál, svo eru sumir að setja nafnið sitt inn á listann tharna og segjast ætla vera virkari á nýju ári, ég persónulega set ekki nafnið mitt ef ég ætla svo ekki að standa við thað. Svo thetta er mjög skrítið, svona í kringum tvöhundruð hafa sett sig á thennan lista en ekkert gert í málinu :( Hverjir ætla að vera virkari á þessu áhugamáli á nýju ári? 2829 321 aaddi7 Abigel Acerbus addi AichaLady Amerya Angelicia aqulera arnifannar03 Aron88 Asta AstaKristin atli1 austurey...

Illt í maganum :@ (30 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum
Mér er ógeðslega illt í maganum afþví að ég borðaði glassúr-snúð úr bakaríinu, ég er með eggja-ofnæmi og þessir glassúr snúðar eru örugglega penslaðir með eggi, mér íður ömurlega. Til að bæta gráu ofan á svart er ég að fara í frjálsar í kvöld á trampólínið, að hoppa þegar manni er illt í maganum=alger steypa :( Svo, hérna sit ég bara, með “ont i maven” *andvarp*

Hjálp ! (3 álit)

í Windows fyrir 19 árum
Ég er að gera ritgerð um “Wind in the Willows” og þar sem ég er hræðileg í enskri stafsetningu vantar mig að vita hvernig maður setur “Spelling and Grammar check” á, það kemur upp svona gluggi að það sé búið að fara yfir en það koma engin undirstrik eða neitt svo ég sé ekki hvað er vitlaust. Hjálp ?

http://www.ruv.is/spaugstofan (0 álit)

í Húmor fyrir 19 árum
Mér finnst þessi síða ágæt, annars er voða lítið fyndið á henni, en það er gestabók :)

Sterar (5 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 19 árum
Ég var að pæla, með stera, afþví að ég nota stera - asmastera, nauðsynlegir svo ég standi ekki á öndinni, hvort það sé í lagi, ég er alveg að kafna ef ég tek ekki þessa stera. Svo spurningin er má ég nota þessa tegund af sterum?

Áttirðu Nintendo? (7 álit)

í Háhraði fyrir 19 árum
Þetta myndband er snilld, gasalega fyndið, fór að hlægja helling…

Hvað er Tevur? (48 álit)

í Skátar fyrir 19 árum
Könnunin: “áttu Tevur” ég skildi eiginlega ekki hvað tevur var en svaraði samt nei. Svo, hvað er eiginlega tevur?

Fyrsti dagurinn (5 álit)

í Frjálsar íþróttir fyrir 19 árum
fyrst ætlaði ég að setja þetta inn sem grein en fannst það eitthvað svo stigahórulegt, svo ég ætla bara að setja þetta inn sem kork. Fyrsti dagurinn í frjálsum var ágætur, ég fór með vinkonu minni (Addydogg) í íþróttahúsið til að prufa. Einhver maður var þarna sem sagði okkur að fara inn í klefa og koma svo fram til að hita upp, við fórum inn í klefa (við vorum bara tvær sem mættum) og síðan fram. Svo var byrjað að hita upp, fjórtán ferðir fram og til baka. Þegar upphitunin var búin áttum...

Hvar er??? (12 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum
Hvað varð af spunanum “Englar fella líka tár” ??? Af því að hann var ágætur, svolítið Mary-Sue legur en samt, góður…

Stákarnir (103 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum
Ég þoli ekki hvað strákarnir þurfa alltaf að vera að sýna á sér rassgatið, svo eru þeir alveg hrikalega loðnir þar, mig langaði eiginlega ekkert að vita hvernig rassinn á þeim væri, ég var bara í sakleysi mínu að horfa á sjónvarpið þegar sést í þeirra loðnu rassa. Oj, bara, finnst þeim eitthvað gaman að sýna á sér rassinn, þeir gætu alveg haldið sínu loðnu rössum fyrir sig, og helst nærbuxurnar líka. Hafa þeir gaman af því að sýna öllu fólkinu rassinn á sér og hvor öðrum.

Reyna að fara??? (3 álit)

í Dulspeki fyrir 19 árum
Mig dreymdi draum fyrir stuttu þegar ég lagði mig, mig dreymdi að ég væri í fríi með mömmu og pabba í einhverju sumarhúsi, það var svona samkomusalur í því. Ég var í salnum og sá gamla konu en reyndi ekki að tala við hana afþví að mamma og pabbi bönnuðu mér að tala við ókunnuga. Svo fór ég allt í einu að tala við hana og hugsaði: “ég verð að komast út úr þessum draum” .

Keðjuljóð (6 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hvernig væri að við gerðum Keðjuljóð ??? Þá myndi ég byrja á tveimur línum og svo myndi næsti setja inn næstu tvær línur. allir endar þurfa að ríma við þann sem er fyrir tveim línum fyrir ofan, víxlrím. Þá T.d. Þá var malað og bullað mikið. enda talað yfir strikið. Fattiði? Fyrstu tvær línurnar: Beljan fraus í sporunum á miðjum gangvegi.

Landsmótsvefurinn (1 álit)

í Skátar fyrir 19 árum, 1 mánuði
Veit einhver slóðina á landsmótsvefnum? Af því að á morgun/fljótlega á að borga og ég veit ekki hvað mikið, vantar líka almennar upplýsingar um mótið- blaðið sem ég fékk var brennt í kamínunni fyrir slysni.

Tómatsósublettir... (0 álit)

í Heimilið fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hvað gerir maður til að ná litlum tómatsósublett úr hvítum buxum, 100% Cotton ??? Vantar eiginlega að vita það, nærri nýjar buxur og ég setti óvart smá tómatsósu í hvítu buxurnar mínar þegar ég var að borða eitthvað. Þetta er á frekar áberandi stað. Vill einhver vera svo vænn að hjálpa mér ???

Nýi Stíllinn Keisarans (9 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hvað heitir Nýi Stíllinn Keisarans á Ensku? Ég á nefnilega bara íslensku útgáfuna…

Download (5 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég var að hlaða inn ónefndum lögum (vona að ég fari ekki í bann fyrir þetta), bara fyrir mig-ekki til að dreyfa og þá kom eitthvað um að ég gæti ekki spilað vegna þess að “file name is bad” Hvað meina þeir með því? Enn og aftur, ef það má ekki tala um Dowload hér þá biðst ég afsökunar. :(

Skotin í... (186 álit)

í Rómantík fyrir 19 árum, 1 mánuði
Það er eitt að hjá mér, ég er svolítið skotin í strák sem er tveim árum yngri og ég veit að nokkrar aðrar stelpur eru skotnar í honum líka. En málið er það að hann getur talað bæði við stelpur og stráka (bara svona venjulega) og svo er hann ljóshærður, bláeygur og skemtilegur. Nokkrar vinkonur mínar vita að ég sé skotin í honum en einn vinur minn (eða ekki vinur, veit ekki :S ) veit ekki hver hann er og er alltaf að stríða mér á því hvað ég sé skotin (er ekki skotin í honum) í öðrum gaur…...

Klígja og Stingur (4 álit)

í Heilsa fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég er með matarofnæmi og þegar ég borða eitthvað sem hefur (egg eða fisk) í þá fæ ég þessa svakalegu klígju- og bólgna upp í hálsinum. Þannig veit ég alltaf þegar ég er að borða eitthvað sem ég get ekki borðað. Svo er annað, ég er með áreinsluasma líka og stundum þegar ég er með asma þá fæ ég ægilegann sting í lungun og líður eins og brjóstkassinn rúmi ekki lungun- hvað gæti það þýtt? Ég er ekki sú eina sem er svona, mamma mín og vinkona/frænka mín hafa svona líka.

Söfnunaráhugamál (35 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 1 mánuði
Er ekki neitt söfnunaráhugamál á huga? kanski er maður að safna frímerkjum og langar til að tala um það og svoleiðis… Ykkur gæti fundist þessi korkur tilgangslaus en ég var að pæla í þessu…

Villti folinn (12 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hvað heitir Villti folinn á Ensku, það er að segja titillinn á myndinni?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok