Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

KR2S
KR2S Notandi frá fornöld 6 stig

Re: Framtíðin og fleira

í Flug fyrir 21 árum, 11 mánuðum
“Tölvur eru og verða alltaf heimskar sama hvað raular og tautar.” Það eru ekki tölvurnar sem eru heimskar, það eru mennirnir sem forrita þær…

Re: Slys á Sandskeiði

í Flug fyrir 22 árum
Flugan er illa farin. Það eru sprungur í fiberglassinu langsum eftir skrokknum og vængirnir eru skakkir. Það sem gerðist er að flugan flaug fram úr vírnum í ca 20m hæð, hugsanlegar orsakir eru að spilið hafi “koksað” (hætt að draga) eða að það hafi verið vind shear í lofti þ.a. flughraðinn hafi dottið skyndilega niður. Vírinn slitnaði ekki. Flugan klifraði ekki of hratt í byrjun eins og er oft orsökin fyrir slysum í flugtaki á spili (dauðaslys '94 á melgerðismelum) heldur klifraði rólega...

Re: Slys á Sandskeiði

í Flug fyrir 22 árum
Þetta var ASK-21, tveggja sæta plastsviffluga í eigu Svifflugsfélags Íslands (TF-SAC). Svo virðist sem eitthvað hafi farið úrskeiðis í flugtaki á spili sem varð þess valdandi að svifflugan lenti harkalega á framhjóli og gekk það upp að hluta. Hún fór í ca. 20m hæð í flugtaki og rann 50 til 100m á brautinni eftir lendingu.

Re: Flugnám

í Flug fyrir 22 árum
Besta vinna í heimi? Er þetta ekki bara eins og að vera strætóbílstjóri nema að manni er ekki treyst fyrir fargjaldinu???

Re: ULTRALIGHT

í Flug fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Tékkaðu á http://www.fisflug.is held að það segi allt sem segja þarf..

Re: Hvaða vél?

í Flug fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hugsa að ég myndi frekar lenda á malarbrautinni heldur en grasinu ef ég væri að fljúga í svona “miklu” rökkri (sem ég geri ekki) og þekkti ekki grasbalann. Það er búið að vera frost þarna uppfrá í talsverðan tíma og örugglega lítil hætta á að mölin sé varhugarverð. En grasvöllurinn er eins og hann hafi lent í sprengjuárás á sumum stöðum (enda ER alvöru sprengjugígur í jaðrinum á honum, sunnanmegin, og ég sá TOY-ið fara ofan í hann í haust og þeir stukku uppúr honum. Smá taugatitringur það)

Re: hvað er að gerast í flugmálum í dag !!!

í Flug fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er nú meira vælið…

Re: Svifhraði

í Flug fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef þú ert með rellupróf (sem þú ert væntanlega með) þá eru þetta nokkur hopp, ca. 10 flug og kostar í kringum 20 þús, minnir mig. Þá getur þú skroppið niður í FMS og fengið eitt stk. svifflugskýrteini, gaman gaman.

Re: Svifhraði

í Flug fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þá átt þú væntanlega við þann hraða þannig að þú farir sem lengst m.v. hæð. Þá skiptir þyngd vélarinnar máli, meiri þyngd => meiri hraði. Svifflugmenn (eins og ég) setja hundruð lítra af vatni í vængina til að svífa hraðar. Samt kemur svifhornið (lengd sem flogin er / fall) verr út því draggið af vélinni hækkar hlutfallslega meira en hraðaaukningin. Ef að ég myndi hinsvegar missa mótor á cessnunni minni myndi ég fljúga á minnsta fallhraða, sem er lægri en besti svifhraði. Þá færðu auka tíma...

Re: TL-Sting ultralight...

í Flug fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Snýst þetta ekki allt um að skemmta sér, þetta ætti að vera góð græja í það…
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok