Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: ibanez gitar til sölu

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þú segir líka að það sé tollur af hljóðfærum, en svo er ekki.

Re: ibanez gitar til sölu

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Sama hvað hann hefði sagt, það hefði enginn keypt þetta á 45þús þegar þetta kostar undir 40þús nýtt hér á Íslandi, og enn ódýrara flutt inn.

Re: Sonata Arctica - Frábærir.

í Metall fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Mjög skemmtilegt band finnst mér. Meistaraspilamennska hér á ferð. Ég heillaðist strax af upphafsriffinu á Wolf and Raven.

Re: Line 6 magnarar

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég á Spider II 212, 150W, og hann er frábær finnst mér.

Re: Hverjir hita upp fyrir Iron Maiden ?

í Metall fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Sammála því, Týr væru flottir!

Re: Myndband...

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Lagið sem er undir, lag eftir Bach

Re: Rokk er ekki tónlist

í Rokk fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég tel þessu nú sem kaldhæðni, getur varla verið neitt annað.

Re: Smá könnun :) Endilega svara ! :D

í Metall fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þú veist að það er nú James sem semur þetta mest allt, allavega af gamla efninu. Kirk fór ekki að taka almennilega við sér fyrr en á Load/Reload tímabilinu. Vona að ég sé ekki að fara með fleipur.

Re: Hverjir hita upp fyrir Iron Maiden ?

í Metall fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Dark Harvest er tilvalið band til að hita upp.

Re: Pantera í stuttu máli.

í Metall fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þessar plötur eru svona skemmtilega öðruvísi en hinar plöturnar finnst mér. Ekki eins heavy, meira svona í anda hármetalsins.

Re: Myndband...

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Alls ekki fyndið og þvílíkt guðlast að nota Pachelbell Canon í þetta :/.

Re: 4. sæti...

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Skemmtilegasta áhugamálið hérna á huga. Eiginlega það eina sem ég stunda hérna ennþá.

Re: Squier kjéllinn

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Squier geta verið fínustu hljóðfæri. Ég á Squier Stagemaster Deluxe HSH og hann er þrælgóður bara. Náunginn sem ég keypti hann af pantaði hann að utan á 55þús þannig þetta er ekki eins low budget og Strat pakkarnir. Hann heldur stillingu mjög vel, enda með Floyd, soundið er gott og mjög gott að spila á hann finnst mér. Síðan tel ég mig heppinn að hafa aldrei þurft að spila í gegnum þessa pínulitlu magnara því ég byrjaði með 50W Marshall og er feginn því.

Re: stór gítar

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Haha. Sé svo fyrir mér mennina hoppandi á böndunum til að kalla fram hljóma :D

Re: Iron Maiden

í Metall fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Jújú, má alveg reikna með því.

Re: Diskar með kiss og hvenar nokkri hættu í Kiss

í Rokk fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það sést langar leiðir á fyrirsögninni að þetta var illa gerð grein.

Re: Iron Maiden

í Metall fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hehe, var allavega ekki þegar ég mætti. Ég er sko að tala um forsöludaginn..

Re: Iron Maiden

í Metall fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ekki í hljóðhúsinu. Ég mætti þar, var einn í versluninni, framvísaði invoice-inu úr klúbbnum, borgaði miðann og fór út glaður maður.

Re: JReykdal Fasisti!

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þetta mun vera rétt.

Re: OpenGl

í Vélbúnaður fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Allt í lagi þá, ég skipti mér ekki meira af því, vildi einungis koma þessu að án þess að stofna til rifrildis. Sýnist það bara hafa tekist með prýði.

Re: OpenGl

í Vélbúnaður fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Mér finnst nú þægilegra að skrifa “eitthvað” af gömlum vana. Þegar maður er búinn að venja sig á að skrifa orðin á einhvern hátt finnst manni auðvitað þægilegra að skrifa þau þannig. Því er um að gera að venja sig á að skrifa rétt.

Re: Límmiðar

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Báðir komu með diskum, fékk reyndar Morbid miðann gefins því sá sem átti hann þurfti ekki á honum að halda.

Re: OpenGl

í Vélbúnaður fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Styttingar? Sko veðrur Skomm (+2 stafir, ekki mikil stytting hér á ferð) Tölvur verða Töllur (sami fjöldi en feit stafsetningarvilla) Eitthvað verður Eikkað (-2 stafir, stytting en rosaleg stafsetningarvilla) Út frá þessu að dæma stendurðu á sléttu hvað stafafjölda varðar. En hins vegar siturðu uppi með óþolandi skrifmál sem er leiðinlegt að lesa og uppfullt af villum. Síðan vil ég benda þér á að ef þú sleppir úr 1 staf kannski í einstaka orði, þá ertu að spara þér…hmm…kannski þriðjung úr...

Re: Nfl Street - Xbox - Vá!

í Leikjatölvur fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Media Martk, újé! Komið þangað :D. Eflaust fínasti leikur samt.

Re: Límmiðar

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Fékk Megadeth - Cryptic Writings límmiða með disknum sem é smellti á minn, kom nokkuð vel út. Einnig fékk ég Morbid Angel miða sem ég skellti líka á og hann er ekki síðri.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok