Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Girlpants
Girlpants Notandi síðan fyrir 20 árum, 10 mánuðum 36 ára karlmaður
182 stig
The otherworld awaits you.

X Box 360 (4 álit)

í Leikjatölvur fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Xbox 360 full system + 2 fjartstýringar. Dead Rising Need For Speed Carbon Gears Of War Final Fantasy XI Dead Or Alive 30.0000 ?? Hvernig hljómar það ??

XBox 360 (5 álit)

í Final Fantasy fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Má maður ekki auglýsina eitthvað hérna til sölu ? Ég er að reyna að losna við xbox 360 full system með fylgja tvær fjarstýringar og Gears of War, Dead Rising, Need For Speed Carbon, Final Fantasy XI og Dead Or Alive 4.. Ég var að hugsa um svona 30.000 kall fyrir allt heila klabbið, hljómar vel ha ?

Tech Demo (6 álit)

í Final Fantasy fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Jæja, þið munið öll eftir Final Fantasy Tech Demoinu sem kom fyrir svolitlu síðan. Ég hef verið að pæla virkilega í því síðast liðna daga, þar sem að ég hef verið að spreita mig í VII eina ferðina enn, ætli leikurinn verði endurgerður? Sjálfur efa ég það að þessi leikur muni koma. Ég meina, það er ekki eins og Square-Enix hafi ekki nóg á sinni könnu, talandi um að Final Fantasy XIII verði 10 ára program og svo kemur að ég held Kingdom Hearts 3. Endilega ef þið vitið eitthvað um þróun...

Netleikur (11 álit)

í Final Fantasy fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Það hafa ekki margir af ykkur spilað Final Fantasy XI á netinu er það ? Alla vegna vona ég að það leynast einhverjir meðal okkar sem að gera það til að benda mér á eitt og annað. Ég fékk xbox 360 í jólagjöf og byrjaði á því að kaupa mér tvo leiki, annar þeirra er Final Fantasy XI. En það virðist vera alveg sama hversu oft ég reyni að installa þessu hel***i hann stoppar alltaf þegar það eru 8 mín eftir og segir mér svo að það sé installation error. Kom þetta líka fyrir hjá ykkur ? Ef svo er...

Kingdom Hearts II (3 álit)

í Final Fantasy fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Gæti verið spoiler, ég er ekki alveg klár á því. Ég er með nokkrar spurningar varðandi Kingdom Hearts II. Ég kláraði hann fyrir ekki svo löngu síðan en ég get bara ekki lagt hann aftur á hilluna án þess að klára hann 100% ég er “perfectionisti” eins og flestir kjósa að kalla það. En alla vegna þá var ég að velta því fyrir mér hvað ég þarf að gera til að geta farið í öll tournamentin í olympus, líka þessi hjá Hadesi. Svo líka þá veit ég ekki hvernig ég get spilað struggle við fleiri en...

FF X-2 (10 álit)

í Final Fantasy fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Heeeeyyy hey hey… gott fólk. Ég kem til ykkar á tíma örvilnuna og ég leita ráða. Þegar það kemur að FF X-2 þá á ég fleiri veikar hliðar en sterkar og spyr ykkur því hvar í brennandi helvíti þið kusuð ykkur að lvl-a lufsurnar ykkar og hver var uppáhalds dress-sphere samblandan ykkar á litlu stelpunum ?? P.s. Ég heiti kannski Girlpants en ég er samt gaur :) Vildi bara koma þessu frá :D

Last Order (9 álit)

í Final Fantasy fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Getur einhver sagt mér eitthvað frá þættinum ? Er þetta sería ? Sá nefnilega einn þátt, held að það hafi verið númer eitt því að þetta var svona eiginlega byrjunin á Final Fantasy VII eða svona áður en byrjunin er, segja hvernig fór fyrir Zack og pabba hennar Tifu og svona. Geggjað töff þáttur að mínu mati, langar að sjá meira…

Advent Children (1 álit)

í Final Fantasy fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ahhh, loksins loksins líður mér eins og sönnun Final Fantasy aðdáanda aftur… náði mér loksins í eintak af Advent Children, allt isak62 að þakka að ég sá þessa mynd :P Geggjuð mynd, soldið ruglingsleg í fyrstu en þegar ég horfði á hana í annað sinn þá skildi ég þetta eiginlega mikið betur, svona nokkurn veginn eins og með Fight Club :P Mér fannst samt söguþráðurinn svolítið þunnur samt… Það var samt geggjað að sjá þessa charactera aftur í action :D

Sphere Grid (7 álit)

í Final Fantasy fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Var að velta því fyrir mér hvort að þið hefðuð einhverja skoðun á normal sphere grid og expert sphere grid, liggur einhver munur þar á ? Hvort fannst ykkur betra ef þið hafðið prófað bæði. Málið er nefnilega það að ég er að fara að spila #X aftur og mig langar að vita hvernig expert gridið er…

SeeD (7 álit)

í Final Fantasy fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég hef lengi vel spáð og spekulerað hvað SeeD þýðir. Ég veit hverjir þeir eru og hvað þeir gera en hvað er SeeD stytting á? See Dum, See Ding, See Deadly, See Dat…?? Veit einhver hérna fyrir hvað SeeD stendur ??

Háhraði (5 álit)

í Final Fantasy fyrir 19 árum
Búnir að sjá færsluna “Áttirðu Nintendo” ? Ef mér skjátlast ekki þá taka þeir Final Fantasy þarna síðast þegar gaurinn kemur með sverðið…Am I right ? Am I right ?

Griever (1 álit)

í Final Fantasy fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Góðann og blessaðann daginn sam-final fantasy aðdáendur. Í fyrsta lagi vil ég biðjast fyrirgefningar á því að senda inn könnunina sem að fékk suma til að reiðast. Ég hugsaði ekki útí það að sumir hér væru hugsanlega ekki búnir að vinna Final Fantasy VII, þannig að ég vil biðjast afsökunar á þessu klúðri. Í öðru lagi langar mér að spyrja hvort Griever í FF VIII komi eitthvað við sögu í leiknum annað en þegar Rinoa spyr hann Squall hvað hann kallar hringinn sinn, er Griever summon eða hvað ?

X-2 (17 álit)

í Final Fantasy fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvað er í gangi. Enn einu sinni leita ég hjálpar ykkar sam-nördana í sambandi við FF leik og núna er það X-2. Er það bara ég eða er þetta ógeðslega erfiður og leiðinlegur leikur, allir tala um hvað það er flott bardagakerfi í leiknum og það hafi bjargað leiknum frá glötun. Persónulega finnst mér bardagakerfið hundleiðinlegt, miklu betra í X. Ég þarf hjálp við að vita hvar ég get leveleað kallanna að einhverju ráði, ég er ekkert að meika það í þessum leik. Ég er kominn í chaper 5, búinn með...

255 (11 álit)

í Final Fantasy fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Okey, ég hef verið að lesa suma korka hérna og ég vil bara spyrja hvernig í anskotanum þið fóruð að því að fá 255 í öllum stats, er þetta í FF X því að ef svo er þá er ég búinn að mastera sphere grid með 3 gaurum og enginn þeirra fer yfir 200 í neinu, hvað er að gerast eiginlega ?

Ráð (9 álit)

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hæ, ég er frekar nýr þegar það kemur að allri hollustu og lyftingum. Ég er nýbyrjaður að lyfta og ég stefni eiginlega mest að því að fá almennilega flottann kassa, hafiði einhver góð ráð handa mér?? P.s. Ég heyrði það að það væri bara bull að lyfta nema maður væri á kreatíni eða prótíni eða einhverju svona orku boost duft dæmi, þið fattið mig. Er þetta satt ??

Jecht shot 2 (12 álit)

í Final Fantasy fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Vá, ég er að verða gjörsamlega brjálaður á þessu blitzball þótt að ég sé alveg óstöðvandi í þessum leik. Þannig er mál með vexti að ég hef tvisvar sinnum rekist á jecht shot 2 sem verðlaun í blitzball tournamenti og í bæði skiptin sem að ég hef keppt í tournamentunum hef ég unnið það, en þegar ég á að fá verðlaunin þá kemur alltaf að ég geti ekki fengið jecht shotið því að það geti enginn lært það í liðinu mínu, hvað í andskotanum á þetta að þýða, getur einhver komið með skýringar fyrir mig...

Þarf hjálp með FF-X-2 (7 álit)

í Final Fantasy fyrir 20 árum, 1 mánuði
Áður en ég byrja með greinina þá vil ég biðja þá sem svara að vinsamlegast ekki svara með spoiler og ef einhver ætlar að vera fyndinn og skrifa inn spoiler og ég les hann og það eyðileggur fyrir mér endann á leiknum þá vil ég bara segja við þann aðila að hann á skilið að myrðast. Alla vegna, ég er að spila FF X-2 og ég er að gera missionið þar sem að ég á að ná aftur í sphereið sem að Leblanc Syndicate stal frá mér, ég er á því stigi að ná í búningana hjá Leblanc og ég er kominn með tvo,...

Hversu mikið ?? (6 álit)

í Final Fantasy fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Hversu mikið þarf ég að borga Yojimbo í FF X til að fá Zanmato, erþað bara milljón og svo vona að hann geri það ?? Og svo líka, veit einhver hvað ég þarf að vinna marga blitzball leiki til að fá legendery weaponið hans Wakka ??

Auto-Life (16 álit)

í Final Fantasy fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Auto life lífgar mann við þegar maður deyr er það ekki?? Sjálfkrafa eða gerir annar character það við mann í teaminu?? Og Ribbon, hvað er það og hvað gerir það? Með þessar spurningar á ég við leiknum FF X.

Ladder ???? (3 álit)

í Blizzard leikir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég er ekki beint nýr í Diablo en ég hef bara ekki hugmynd um það hvað Ladder er, getur einhver sagt mér hvað það er ???????????

Dark Aeons in FF-X (11 álit)

í Final Fantasy fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég er feitt desperate of þarfnast góðra svara, með áheyrslu á GÓÐRA SVARA!!!!!!! Þannig er gangur mála að ég tapa alltaf fyrir öllum dark aeonum og verð að vinna þá því að ég vil klára leikinn eins og hann leggur sig. Ég mætti fyrst dark Valefor og guð veit að mér var rústað. Þeir eru allir ruglaðir (dark aeonarnir), ég hef barist við þessa eftirfarandi, Valefor, Ixion, Ifrit, Magus Sisters og tapað fyrir hverjum einasta. Það sem ég þarf að strategy fyrir bardaga við hvern einasta dark...

No-Encounter (5 álit)

í Final Fantasy fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Spurning!! Hvar getur maður fengið eitthvað sem að gerir no-encounter, segið mér allt um það. Hvar ég get fengið item til að customiza það, frá hvaða enemy, hvar er þessi enemy, allt ég vil vita allt um no-encounter!! takk fyrir.

Ráð (3 álit)

í Final Fantasy fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Í Final Fantasy X, butterfly hunt í Macalania, ég hef átt í vandræðum með þennan leik þótt hann sé ekki svo erfiður, málið er bara það að ég finn svo sjaldan bláar flugur þegar ég er cirka búinn að góma 3-4, hefur einhver, einhver ráð handa mér ? Og eitt enn, í Thunder plains, þegar maður er að activate-a cactuar stones til að kalla fram drauginn sem að sýnir manni einhvern stein þar sem Spirit Lance er (ultimate weaponið hans Kimahri), veit einhver um kort af thunder plains sem sýnir hvar...

Blitzball í fyrsta sinn (9 álit)

í Final Fantasy fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þið vitið þegar maður kemur fyrst til Luca eftir að hafa verið í Kilika island þá þarf maður að læra Jecht shot á S.S. Liki. Ég hef tvisvar spilað leikinn og í bæði skiptin hef ég ekki getað náð skotinu og ekki getað unnið fyrsta Blitz ball leikinn og það fer ógurlega í taugarnar á mér, ef þið hafið einhver ráð eða stragety til að vinna leikinn þá væri það vel þegið. Takk fyrir, Girlpants.

1 sem þarfnast svara (7 álit)

í Final Fantasy fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég var að skoða screen shot úr Kingdom Hearts á www.gamespot.com og sá þar í einni myndinni að þar var Sora að hlaupa eftir gangi sem að líktist höllinni í byrjun leiksins, þið vitið, þar sem King Mickey á heima. Það sem að ég vil vita er er hægt að fara inní kastalann einhvern veginn, er einhver ykkar sem að veit eitthvað um þetta, eða er það bara hægt í einhverju öðru versioni af leiknum, endilega látið mig vita ef að þið vitið eitthvað um þetta, takk takk.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok