Gæti verið spoiler, ég er ekki alveg klár á því.




Ég er með nokkrar spurningar varðandi Kingdom Hearts II. Ég kláraði hann fyrir ekki svo löngu síðan en ég get bara ekki lagt hann aftur á hilluna án þess að klára hann 100% ég er “perfectionisti” eins og flestir kjósa að kalla það. En alla vegna þá var ég að velta því fyrir mér hvað ég þarf að gera til að geta farið í öll tournamentin í olympus, líka þessi hjá Hadesi. Svo líka þá veit ég ekki hvernig ég get spilað struggle við fleiri en Hayner.. Svo eitt sem að fer alveg gífurlega í mig og það er það að þótt að ég sé búinn að klára leikinn og loka hverri einustu “keyhole” sem að er í leiknum þá kemur ekki að ég sé búinn að hitta alla characterana í twilight town, ég er að verða gráhærður, er einhver sem að kláraði leikinn og fékk alla characterana þar ? Ef svo er endilega teldu þá upp fyrir mig :D Væri vel þegið.

Kveð í bili.
The otherworld awaits you.