Mér finnst nú skaupið 2003 eða 2004 (man ekki hvort) toppa þetta í ömurleika! :/ Þar var ekki einu sinni reynt að fá mann til að hlæja. Annars var þetta frekar slappt… frekar mjög slappt. Ég viðurkenni samt að ég hló að þessu með Bubba í DV. :)
akkúrat! ég mun örugglega aldrei gleyma þessu :P Svo virkaði þetta líka á mig á undarlegan hátt, því að síðan ég sá þetta fyrst er ég skíthrædd við flugelda. :/
Ég held þetta hafi verið svona eins og þú ert að segja. Þetta er allt að rifjast upp. En ég veit ekki hvernig ég á að redda þessari auglýsingu… :/ Það er að fara í taugarnar á mér. híh. Og jú, Anchorman eins og Mog sagði. :P Æðisleg mynd.
Vá… ansi gott ár hjá þér ef satt skal segja! Annars hef ég… bara… uh… jeminn eini ég hef ekki afrekað neitt á þessu ári! Nema ég held ég hafi sett persónulegt met í bíóferðum og kvikmyndaglápi + ég vann mér inn skítalaun í unglingavinnunni. En fyrir utan það gæti ég alveg eins verið ekki til… :/ Ég þarf að fara að gera eitthvað við líf mitt. Á stundinni!
nokkurn veginn, já. eða eins og peturp sagði Þetta er þegar Wendy er að flýja Jack, í lokin. Nánara tiltekið á 2:10:16 fyrir þá sem eiga myndina. Í Stanley Kubrick's Shining.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..