Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Reisubok Gudridar Simonardottur (2 álit)

í Bækur fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ætla ad byrja a afsøkun a vøntun a islenskum støfum!!! Akvad loksins um daginn ad vinda mer i tetta storverk, og verd ad segja ad eg vard hreint ekki fyrir vonbrigdum!!! Tad ma kalla tetta søgulega skaldsøgu tar sem hun fjallar um Tyrkjaranid og Gudridi Simonardottur sem flestir Islendingar kannast sjalfsagt vid. Bokin segir fra reisu hennar til Alsir og ferd hennar asamt islendingunum aftur heim, lifi hennar og thram tann tima sem hun dvaldi erlendis. Mikil heimildarvinna liggur ad baki...

Vefarinn mikli (5 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 1 mánuði
Var að lesa Vefarann mikla frá Kasmír í fyrsta skipti um daginn, og varð vægast sagt mjög ánægð með hana. Hún fjallar í raun og veru aðallega um strák/mann sem heitir Steinn Elliði og stúlku/konu sem heitir Diljá. Þessi saga er að mörgu leyti mjög ólík öðrum verkum Laxness þar sem hún er á margan hátt mjög huglæg. Það sem ég er að reyna að segja er; í raun gerist ekkert mjög mikið í bókinni, heldur er hún meira um hugsanir og tilfinningar sögupersónanna. Það eina sem að mínu mati dregur...

Sælir eru einfaldir (0 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Halló!!! Var að ljúka við bókina Sælir eru einfaldir eftir Gunnar Gunnarsson, og dauðskammast mín að sjálfsögðu núna fyrir að hafa ekki verið búin að lesa hana fyrr, en eins og þið sjálfsagt vitið var Gunnar einn ástsælasti höfundur Íslendinga (þó svo hann hafi skrifað á dönsku) og eftir að hafa lesið ekki nema eina bók eftir hann verð ég samt að segja að það kemur mér ekki mikið á óvart. Sælir eru einfaldir er, til að byrja með, ekki aðeins bók sem fjallar um hætturnar að lifa fyrir eina...

Röddin (5 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég las fyrir skemmstu nýjustu bók Arnaldar Indriðasonar, Röddina, en hún fjallar um sömu lögreglumenn og verið hafa í síðustu bókum hans, þá Erlend og Sigurð Óla, sem að þessu sinni reyna að leysa morðmál þar sem gömul barnastjarna finnst myrt með buxurnar á hælunum í ógeðslegri kjallarakompu. Í þessari bók fær lesandi samt mun meiri upplýsingar um Erlend heldur en í fyrri bókum. Við fáum t.d. að vita af hverju hann hefur svona gríðarlega mikinn áhuga á hrakningarveðrum og því þegar að fólk...

Konan í köflótta stólnum (4 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég var að lesa bók nýverið sem heitir konan í köflótta stólnum og er eftir Þórunni Stefánsdóttur, og mig langar aðeins að segja ykkur frá henni. Þess má einnig til gamans geta að hún var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þetta er sem sagt reynslusaga þunglyndrar konu, en eins og hún réttilega kemur inn á þá lýsir enginn þunglyndi á sama hátt því það hefur svo mismunandi áhrif á fólk. En hún reynir að lýsa því hvernig henni leið og svo bataferli sínu, því að í dag er hún nokkurn...

Grandavegur 7 (7 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Halló, mig langaði bara aðeins að segja ykkur frá einni bók sem ég var að lesa nýverið og er það bókin Grandavegur 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur. Það er nú reyndar svolítið síðan hún var gefin út (ég hafði bara ekki tíma til að lesa hana fyrr)en það var árið 1994. Allaveganna þá fjallar bókin um Eindísi sem er 15 ára stelpa (þetta er samt ekki unglingabók), en hún er skyggn og eru látnir fjölskyldumeðlimir hennar alltaf í kringum hana. Reyndar ekki bara fjölskyldumeðlimir, heldur einnig fólk...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok