Innlent | mbl.is | 5.2.2006 | 9:45 Tveir menn stöðvaðir með fíkniefni í Reykjanesbæ Að sögn lögreglunnar í Keflavík höfðu lögreglumenn afskipti af tveimur mönnum í Reykjanesbæ þar sem þeir eru grunaðir um fíkniefnamisferli, en þeir voru stöðvaðir um kl. sex í morgun við reglubundið eftirlit. Við leit á mönnunum fundust um sjö grömm af meintu hassi og um þrjú grömm af meintu amfetamíni. Þeir voru látnir lausir eftir yfirheyrslu.