Nánast helmingurinn af fókinu inná msn hjá mér heitir eitthvað “til hammó silvíah nótt skilruh *gelgjz?”, er hún virkilega svona heitelskuð af okkur íslendingum eða er þetta land að sökkva niður.
Ég játa að ég hef einstöku sinnum hlegið yfir þessum þáttum hennar en þetta lag er hreinlega leiðinlegt, textinn kemur ekki nálægt orðinu fyndinn í minni orðabók svo er laglínan sjálf hundleiðinleg.

Hvað er það sem heillar landsmenn svona við silvíu?