Ýttu á ctrl+alt+delete og farðu í Task Manager. Farðu í Processes og athugaðu hvort þú sérð ekki skrána þarna. Ef hún er á listanum, veldu hana og ýttu á End Process og eyddu síðan skránni. Ef það heppnast ekki, farðu í Start->Run, skrifaðu “regedit” og OK, og leitaðu svo að skráarheitinu. Eyddu öllum vísunum í hana, endurræstu tölvuna og reyndu að eyða skránni aftur.