Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Dosatunsbraedur
Dosatunsbraedur Notandi síðan fyrir 18 árum, 10 mánuðum 220 stig

Könnunin (9 álit)

í Hjól fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Hvað með ef maður veit ekki hvort maður ætli að fá sér? Bara svona að benda á það þar sem mig langar mjög mikið til að kaupa mér annað en það er alltaf spurning. Já og gleiðilegt nýtt ár.

Ekki reykja og dæla bensíni (27 álit)

í Háhraði fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Bara svona til að vera leiðinlegur þá er þetta vegna stöðurafmagns ekki reykinga, hún renndi sér út úr bílnum og bjó þá til stöðurafmagn og snerti ekki bílinn til að afhlaða sig og þegar hún snertir dæluna neistar og kveiknar í bensíngufunum. Annars áttu ekki að geta kveikt í bensíni með sígarettu, sannað í Mythbusters.

Setur einhver saman felgur hér á landi? (26 álit)

í Jaðarsport fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Vitiði til þess að einhver setji saman felgur hér á landi og hvort taki það að sér? Sjálfum langar mig að læra það en það er bara spurningin hvernig maður byrjar að læra þetta!?! Svo er líka svo svalt að vera með sér samsettar felgur. Veit ekki hvað ég ætti að kalla þetta annað en felgur, einhverjar betri hugmyndir?

Bender bakbrotinn (6 álit)

í Hjól fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Jæja, eftir að hafa séð óstaðfrestar fréttir af því að að Bender hafi alvarlega meitt sig í síðustu viku fann ég loksins staðfestingu á því. Síðasta mánudag var hann að taka 35 feta drop með smá gappi sem endað með því að hann bailaði á síðustu stundu. Það heppnaðist ekki nógu vel og flæktist í hjólinu í lendingunni. Hann gekkst undir aðgerð vegna brotins ökla og var sendur heim. Skömmu eftir það hringdi vinur hans á sjúkrabíl vegna mikilla kvala sem Bender þjáðist af. Við myndatöku kom í...

Könnunin (7 álit)

í Hjól fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ég var að skoða könnunina hérna um backflipin og sá að það segjast 16% hafa getað backflip. Ég fór að reikna og 16% af 49 manneskjum sem svarað höfðu könnuninni gera 7,89 eða 8 manneskjur hafa meikað backflip. Ok ég veit um að einn getur það á hjóli og tveir á skíðum en hverjir fleiri, og ég vill myndir.

Nota ekki allir hjálma? (23 álit)

í Hjól fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég rakst á þetta: http://forums.mtbr.com/showthread.php?t=141241 og fór að hugsa hvort það notuðu ekki allir hjálma? Sjálfur notaði ég ekki hjálm innabæjar hérna áðurfyrr en eftir að ég fékk drusluna þá keypti ég mér Pro-Tec hjálm ásamt tvemur vinum mínum og núna notum við þá alltaf. Eftir að ég las þetta þá er ég bara fastari á því að vera alltaf með hjálm hér eftir því eins og þeir segja þarna: “freak accidents can happen”.

Einhver áhuga á að panta DVD myndir? (7 álit)

í Hjól fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég er að fara í að kaupa mér nokkrar DVD myndir að utan eftir nokkra daga og var að spá hvort einhver vildi nota tækifærið og fá að nota sendinguna? Hver diskur er á um 3000 kall þó það sé mismunandi eftir því hvað þeir eru gamlir og hversu mikil eftirsókn er eftir þeim. Einhverjar spurningar? Sendið skilaboð ef þið viljið pottþétt panta.

Í boði Kona Stinky 05 (35 álit)

í Jaðarsport fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég er hérna að bjóða hjólið mitt til sölu ef einhver hefur áhuga: Kona Stinky 2005 Medium Allt stock, með fylgir E-13 DRS en það vantar adapter til að festa það á en ég mun redda honum fyrir þann sem kaupir hjólið. Það er einn staður þar sem kapall er búinn að nudda sig í gegnum málinguna og 4 staðir þar sem máling hefur flísast í burtu en ég á málingu til að setja yfir svona staði og mun laga það áður en ég læt hjólið af hendi. Það var notað í 2-3 mánuði í sumar, mest innabæjar vegna...

Til Sölu: Drop Off Triple dual cown gaffall (6 álit)

í Jaðarsport fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Er að selja framgaffalinn sem fylgdi Stinky-num mínum. Notaði hann í u.þ.b. mánuð mest megnis innanbæjar en fór 2 ferðir á honum niður stuttan kindarstíg. Þetta er ódýr en mjög góður dempari sem ég hef ekkert að gera með. Tek við tilboðum. odinnn@gmail.com

Mig langar að fara að hjóla aftur (13 álit)

í Jaðarsport fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég sef í 10 tíma á dag, er í tölvunni og horfi á sjónvarpið hina 14 tímana á meðan þetta situr niðri í bílskúr og gerir ekki neitt…mig langar út að hjóla…

BMX freestyle hjólið á myndinni (2 álit)

í Hjól fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Getum við ekki verið sammála um að þetta sé ógeðslegt hjól? Ef ég væri ekki fótbrotinn þá myndi ég hlaupa inná klósett og æla. Þetta er mín skoðun.

Áhugaleysi/viðveruleysi stjórnenda (14 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég ætla ekki að vera neitt voðalega stórorður en mér finnst svolítið leiðinlegt hvað þessi síða hefur dalað undanfarið vegna áhugaleysis/viðveruleysis stjórnenda. Ég tek sem dæmi áhugamálið Jaðarsport, við erum þarna nokkrir hjóla menn sem höngum þarna og spjöllum en vandamálið er að það er einungis einn stjórnandi fyrir áhugamálið og hann kemur sjaldan inn. Hann hefur tjáð sig á korknum þar og sagt að hann hafi lítinn sem engan áhuga að vera stjórnandi lengur og hefur kvatt okkur til að...

Mappa fyrir CS:S (6 álit)

í Half-Life fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég hef verið aðeins að skoða þetta og hef nokkur vandamál, fyrst er það módelin sem maður getur notað sem eru pre-módeluð og er bara hennt inn, en vandamálið er það að ég fæ ekki hlutina til að vera solid, þ.e.a.s. ég sé þá og þeir eru í réttum hlutföllum en ég get gengið í gegnum þá! Síðan er það vatnið, ég sé í gegnum það og sand texturið sem er undir, spuning hvort vatns kassinn sé eitthvað inni í botnkassanum? En þegar ég er kominn niður í vatnið get ég synt og sé svona vatnsbjögun....

Hjólaferð frá Rauðhól á Reykjaheiði niður í Ásbyrgi (6 álit)

í Jaðarsport fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Síðasta laugardag skellti ég mér í hjólatúr í Kelduhverfi, en fyrir þá sem ekki vita hvar það er þá er það staðsett rétt austan við Húsavík og er aðeins Tjörnesið á milli og einnig er Ásbyrgi staðsett í Kelduhverfi. Þetta byrjað með því að einhver frænka mín sem ég þekki ekkert alltof vel datt það í hug að hóa saman eitthvað af frændfólki sínu og fara í smá “fjallgöngu”. Það var hringt í mömmu og pabba og auðvitað voru þau til. Þá var ég spurður og var ég fyrst alls ekki til í að fara í...

Fyfan, drit og helvette (4 álit)

í Hjól fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Þetta er greinilega ekki mitt ár, sleit krossband í vetur og núna tókst mér að brjóta á mér löppina, og þetta er bæði á hægra fæti. Ég braut minni pípuna í leggnum og verð í gifsi í 4-6 vikur *blót**blót**blót* og á meðan verður hjólið að sitja eitt og yfirgefið inni í bílskúr og bíða eftir að ég lagist. Ég vona að það verði skemmtileg keppni á sunnudaginn, hefði viljað geta mætt. Later amigos

Fyrsta north-shore droppið okkar (10 álit)

í Jaðarsport fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Þetta er fyrsta north-shore droppið sem við byggjum, ágiskuð hæð er 170cm, en innkoman er stutt og breidd pallsins er aðeins 25-30cm. Sem sagt skemmtilegur en lúmskur pallur. Næsti pallur tæpir 2m? sjáum til.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok