Jæja, eftir að hafa séð óstaðfrestar fréttir af því að að Bender hafi alvarlega meitt sig í síðustu viku fann ég loksins staðfestingu á því. Síðasta mánudag var hann að taka 35 feta drop með smá gappi sem endað með því að hann bailaði á síðustu stundu. Það heppnaðist ekki nógu vel og flæktist í hjólinu í lendingunni. Hann gekkst undir aðgerð vegna brotins ökla og var sendur heim. Skömmu eftir það hringdi vinur hans á sjúkrabíl vegna mikilla kvala sem Bender þjáðist af. Við myndatöku kom í ljós að hann hafði brotið hryggjarliðinn L2 og var sendur með flugi á annað sjúkrahús þar sem hann átti að gangast undir aðgerð núna um helgina. Sagt er að þetta líti vel út en það getur tekið hann langan tíma að ná sér.

http://www.nsmb.com/shore_news/benderhurt_11_05.php

Ég vona innilega að hann nái sér fljótt því þessi maður er sá sem kemst næst því að vera Superman.