Þessi dagur er búinn að vera mjög skemmtilegur og á eftir að verða skemmtilegri. í vinnunni í gær fékk ég skemmtilegt símtal um að ég gæti farið í listflug á morgun (í dag sem sagt). Ég var mjög glaður enda var ég búinn að bíða eftir þessu í svona 2 eða 3 mánuði. Ég var kominn útá völl kl 11:30. Þar stóð beint fyrir framan mig TF-TOY sem er vélin sem ég fór á og er af gerðinni Pitts S-2B Special . Svo kom flugmaðurinn sem heitir Guðmundur. Þegar hann var að festa mig í sætið þá hugsaði ég...