Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Ég fékk kött í afmælisgjöf

í Kettir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Æ þetta er svo sorglegt :( Ég samhryggist innilega! Það er fátt verra en að missa einn af köttunum sínum :( Og ferlegt þegar fólk lætur ekki vita strax og maður er búinn að hlaupa útum allt hverfi og liggja andvaka og hringja í kattholt og lögguna og alltsaman og svo er bara einhver bjáni sem hefur keyrt á hann og ekki látið vita! Svoleiðis fólk á greinilega ekki dýr og veit ekki hvað það er að þykja vænt um einhvern!

Re: Grimmasti maður ársins 2002!!

í Rómantík fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hmmm. Mér finnst eiginlega að lífið sé meira eins og dans á þyrnum, þó stöku sinnum hitti maður á rós. ;) En æ hvað sumir karlmenn geta verið tillitslausir. Það er bara sjálfsögð tillitsemi að bíða með svona fréttir fram yfir hátíðarnar! En sumir karlmenn eru einfaldlega svo sjálfselskir að þeir fatta ekki svona einfalda hluti. PS: innilegar samúðarkveður til mömmu þinnar!

Re: Flækingar

í Kettir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hey! Mig vantar einmitt tvo ketti, einmitt einn svartan og annan hvítan! Ætli þeir séu ennþá þarna? Mig virkilega vantar ketti. Ég er að brjálast á að hafa kattalaust heimili!!!!!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok