Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Bararugl
Bararugl Notandi síðan fyrir 12 árum, 9 mánuðum 30 stig

Í öðru rúmi: Annar hluti (1 álit)

í Smásögur fyrir 10 árum, 7 mánuðum
Ég vaknaði daginn eftir í mínu eigin rúmi, og þreifaði fyrir mér inni í herberginu til að fullvissa um mig að ég væri raunverulega þar. Þetta var óþægilegt. Var þetta draumur? Ég neitaði að trúa öðru og fór fram úr. Þegar ég opnaði hurðina fram á gang varð mér litið á rúmið hans Breka; það var vel um búið, rétt eins og þegar ég lagðist í það í gær. Um mig hríslaðist ónotatilfinning. Það var eins og enginn hefði sofið í því síðustu nótt. Ég hlaut að hafa fært mig yfir í mitt rúm um nóttina,...

Í öðru rúmi: Fyrsti hluti (1 álit)

í Smásögur fyrir 10 árum, 7 mánuðum
Ég hafði átt erfitt með svefn í nokkrar vikur, alveg síðan Breki dó. Hann var ári eldri en ég og hefði orðið sautján ára tveimur vikum eftir að hann kvaddi okkur. Mig, mömmu og pabba. Enginn áttaði sig á því hvers vegna hann hafði gert þetta; hann virtist vera ánægður með lífið og kvartaði aldrei undan neinu. En svo, einn morguninn, kom mamma að honum. Hann lá hreyfingarlaus og fölur í baðkarinu. Vatnið var kalt og ljósrautt. Það hafði blandast blóðinu fullkomlega, og varð dekkra með hverjum...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok