Istorrent lokað Sýsulmaðurinn í Hafnarfirði hefur fallist á lögbannsbeiðni á starfsemi skráardeilingarsíðunnar torrent.is sem nokkur höfundarréttarsamtök lögðu fram fyrr í dag.

Það voru Samtök myndrétthafa á Íslandi, SÍK (Framleiðendafélagið), Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar og Félag hljómplötuframleiðenda sem fóru fram á lögbannið á vefnum og var eigandi torrent.is., Svavar Lúthersson, kallaður til yfirheyrslu hjá sýslumanninum í Hafnarfirði í morgun vegna þessa.



Sýslumaðurinn féllst svo á það að loka ætti vefnum og hafði eigandinn frest til hálffjögur til þess að gera það. Það hefur hann þegar gert. Sýslumaður féllst hins vegar ekki á kröfu höfundarréttarsamtakanna um að tölvurnar sem notaðar eru í tengslum við torrent.is yrðu gerðar upptækar á meðan málið er fyrir dómi.

Höfundarréttarsamtökin verða svo að höfða staðfestingarmál vegna lögbannsins fyrir dómi innan viku en þar reynir einnig á efniskröfur samtakanna. Þau saka eiganda torrent.is um að auðvelda og stuðla að höfundarréttarbrotum með því að heimila skráarskipti á torrent.is. Brotin snúi að ólöglegu niðurhali á sjónvarpsþáttum, tölvuleikjum, tónlist og innlendum og erlendum kvikmyndum sem séu höfundaréttarvarin.

Heimild: http://visir.is/article/20071119/FRETTIR01/71119075

Hvað finnst ykkur um þetta ég persónulega er bálreiður útaf þessu ég væri til í að fá mótsvör og hvað fólk gerir við þessu.