Portnay í Megadeth! Hér situr Mike Portnay trommari Dream Theater á bakvið settið hjá Megadeth en eins og flestir metaláhugamenn vita voru Megadeth og Dream Theater að toura saman í USA(Gigantour). Þessi mynd var tekin í Toronto en þá voru síðustu tónleikar Portnay og félaga á Gigantour. Hann spilaði með þeim eitt lag, Peace Sells. Þess má til gamans geta að trommari Megadeth, Shawn Drover tók í gítarinn í þessu sama lagi!!!