Það er allt svo dautt hérna þannig að ég ætla að heiðra dauðarokk af gamla skólanum.Þetta er að sjálfsögðu hljómsveitin Deicide með sína fyrstu plötu sem hét einfaldlega Deicide
Föstudagskvöldið 8. júní ætla hljómsveitirnar Sefjun, Daedra og Dynfari að spila huggulega tónlist fyrir gesti Þýska barsins við Tryggvagötu 22 (gamli Bakkus - við hliðina á Gamla Gauknum)
Huggulegheitin hefjast á miðnætti og kostar litlar 500 krónur inn.
Sefjun - http://sefjun.bandcamp.com/
Sefjun er akureyrsk hljómsveit sem spilar post-rokk í þyngri kantinum á borð við hljómsveitir eins og Envy, Ocoai, Mogwai og Pelican.
Daedra - http://musiktilraunir.is/desktopdefault.aspx/tabid-786/1934_view-1498/
Daedra spilar framsækna en aðgengilega tónlist með söngkonu, gítar, bassa, hljómborði, fiðlu og trommum þar sem hver og einn meðlimur fær að njóta sín og koma með sín áhrif inn. Hljómar ekki eins og Nightwish.
Dynfari - http://www.soundcloud.com/dynfari
Dynfari spilar atmospheric/post-black metal, dýnamískt þungarokk þrungið andrúmslofti. Á Bandcamp síðu sveitarinnar (http://dynfari.bandcamp.com/) má heyra alla fyrstu breiðskífu hennar en önnur breiðskífan er væntanleg seinna á árinu. Lag af þeirri seinni má heyra á Soundcloud (hér að ofan)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..