Eftir að ég fór um daginn á hina stórgóðu og skemmtilegu mynd Kill Bill vaknaði upp gamall áhugi minn á Fuedal tímum Japans þar sem samurai-ar og sverð þeirra réðu ríkjum. Nema það að mér datt í hug að kíkja niður í Nexus og skella mér á svo sem eina slíka manga mynd. Ég byrjaði á því að fara hingað á huga og leita mér fróðleiks um þessar myndir, þar sem ég er ekki nógu kunnugur sjálfur, og las ég grein eina um Rouruni Kenshin, þar sem lýst var einhverskonar samurai kauða. Ég leigði þá þætti en varð fyrir dálitlum vonbrigðum þarsem þeir þættir voru fremur barnalegir og gelgjuleg persónu einkenni aðalpersónanna fór heldur í mig. Því var ég að velta fyrir mér hvort einhver hér gæti bent mér á góða manga mynd eða þætti með þessu viðfangsefni, þar sem markaðshópurinn er kannski fyrir ofan 12 ára börn.