Full Metal Panic? Fumoffu! Þetta er framhald af hinum vinsælu þáttum Full Metal Panic!
og fylgir bókunum frekar nákvæmlega eftir. Þættinir taka
flestir sér stað í skólanum og umhverfi hans.
Serían er frábrugðin fyrri seríunni, að lítið
er um vélmenni og stríð, en meiri áhersla
lögð á grínið.



Þetta gerist stuttu eftir að fyrri serían tekur enda og er
Sosuke Sagara og Chidori Kaname eru að byrja aftur í skólanum
eftir sumarfríið. Sosuke er ennþá, Chidori til mikillar gremju, viðbúinn
hryðjuverkaárásum hvenær sem er og ræðst á allt grunsamlegt,
honum tókst meira að segja að sprengja upp skókassann sinn eftir að
aðeins hefði verið sett í hann bréf.


Þetta eru stórgóðir þættir og alveg sprenghlægilegir. Þættinir eru líka frekar
vel teiknaðir (að mínu mati) og animationið í góðu lagi.
Ég ráðlegg öllum, sem ekki hafa séð þessa þætti, að byrja að horfa á þá.




Ég vil biðja fól að afsaka það hvað greinin er stutt, en ég er ekki vanur
greinarskriftum.

Upplýsingar fengnar á http://www.animenfo.com/animetitle,1252,qaftlx,full_metal_pani.html