Love Hina (ekki fyrir viðkvæma) Davs.

Nýlega tók ég mér Love Hina bækur, fyrsta, annað og þriðja bindi, að láni á
bókasafni. Til að vera hreinskilinn þá vil ég segja að mér finnst þessar bækur vera
eintómur [F-word] saur.

Sagan er um Keitaro Urashima, 19 ára gaur með ekkert sjálfsálit, getur ekki neitt,
er ekki góður í neinu, semsagt algjör auli (að hans eigin sögn) . Hann ákveður að
fara til Tokyo og hitta ömmu sína sem rekur hótel. Þegar hann kemur þá fer hann
í heita laug sem er fyrir utan. Þá kemur nakin stelpa á aldur við hann og sest í
laugina með honum, heldur að hann sé stelpa. Þau eiga stutt og vandræðalegt
samtal og að lokum fattar hún að hann er strákur og kallar hann pervert og lemur
hann.

Þetta er eiginlega það sem er alltaf að gerast. Hann gerir eitthvað vitlaust eða e-r
misskilur hvað hann er að gera og þá kemur stelpa og sparkar/lemur hann og
kallar hann pervert. Seinna kemur í ljós að amman er farin í heimsreisu og búið er
að breyta hótelinu í stelpuheimavist. Keitaro á svo að eiga húsið (Hinata house) og
er svona Landlord (húsráðandi) .

Það eina skemmtilega sem ég sé við bækurnar er innri sagan, hann er að leita að
æskuástinni sem hann lofaði að fara í Tokyo University með… en er sú stelpa í
Hinata house…?

Alla vega finnst mér Love Hina teljast undir hentai saur. Allt of mikið af litlum
skólastelpum í stuttum pilsum svo að á annari hverri blaðsíðu sér maður G-streng
leynast undir pilsinu. Þetta er eitthvað sem mér finnst bara asnalegt að setja inn í
Manga/Anime, það er alveg hægt að búa til góða Manga bók/góðan Anime þátt
án þess að setja litlar skólastelpur í G-streng í þær. Algjört sh!t.

Ég mæli EKKI með því að þið lesið þessar bækur nema þið hafið gaman af stelpum
í efnislitlum klæðnaði sem sparka í andlitið á algjörum aula sem er að leita að
æskuástinni sinni.

LPFAN-san

PS. Þeir sem hafa gaman af þessum bókum mega það alveg. Þessi grein er aðeins
að endurspegla mínar skoðanir í garð þessara bóka/þátta og ég er ekki að segja
að þið séuð einhverjir pervertar út af því að ykkur finnst þetta skemmtilegt. Ekki
vera með skítkast í álitum á greininni. Takk fyrir.