Ef villistu af leiðinni heim
- í bylnum,
á barnum,
í barningnum úti -
máttu vita
að í augum mínum
kveiki ég kertaljós
svo þú ratir aftur
heim í hjartað mitt.