höhömm…hér kemur ljóð…ég ákvað að þora að birta þetta…en ekki gera grín að mér ef ykkur finnst þetta ljótt…því ég er nú bara ung enn!!

————————————————— ————–

Þetta sem ég heyri
og er svo fallegt
að ég get ekki lýst því
er tónlistin úr sálinni þinni

Nóturnar passa svo vel saman
en textinn er óskiljanlegur
Ég veit aldrei hvað gerist næst
Takturinn svo þægilega róandi

Og þegar þú heldur utan um mig
Þá veit ég að þessi sama tónlist hljómar í sálinni minni.

——————————————— —————–

og ég rátbið ykkur um að fara ekki að hlægja og ekki gera grín að mér…ég er viðkvæm lítil hnáta!!! :)