Ég hef prófað 2 litboltavelli. Í lundi í kópavogi og ferðavöllinn þegar hann kom á selfoss einhverntíman. Allavega var ég að pæla hvort það væri kannski eitthvað vit í því að koma upp fleirri völlum? Allavega hafa ferðavöllinn meira á ferðinni, þetta er nú eftir allt ferðavöllur. Er hann ekki búinn að vera á akureyri í þó nokkurn tíma???
Allavega ef hann kæmi á selfoss þá veit ég að minnstakosti 12 manns kæmu fyrsta daginn og eflaust helmingurinn daginn eftir. Við erum 7 frá selfossi og 5 frá hveragerði sem myndum þokkalega mæta og skemmta okkur…
Svo hef ég líka verið að pæla í því að ef ég myndi vinna 100 milljónir í lottó þá myndi ég gera völl hér á self… og þá myndi ég og nokkrir vinir mínir reka vellinn og hafa mjög ódýrt inn :D
Allavega ef þið eruð sammála því að hafa fleirri velli í landinu endilega svarið og líka þeir sem vilja hafa ferðavöllinn meira á ferðinni.
ps. ég vill taka það framm að ég skrifaði þessa rein í tíma og var alveg að sofna þannig að ef ykkur finnst þessi grein vera ruglingsleg þá ekki kenna mér um. Kennið leiðindar myndinni sem við “áttum” að hafa verið að horfa á.
takk fyrir.
Elite paintball fan á selfossi.