Ég hef verið að skoða bæði reviewin sem hafa komið um þennan leik, og ég verð að segja að mér finnst þau ekki boða gott um líflengd hans. Því er haldið fram að mögulegt sé að klára hann auðveldlega á innan við 25 klukkustundum, sem er bara engan vegin nóg fyrir RPG leiki, en standardinn í dag er amk 40 klst.

Ef þetta er satt og rétt þá efast ég einhvern veginn um að leikurinn sé peninganna virði, sama hversu gott gameplay'ið er… heldur er þetta meira svona “kaup'á útsölu” dæmi. :/