Ég hef aldrei verið góður neitt við að fjalla mikið um mynd í grein og ætla að sleppa því þó þessi mynd sé ein af bestu myndum sem ég hef séð. Væri frábært ef einhver annar betri tæki það að sér skrifaði um hana, hún verðskuldar smá athygli :)

http://imdb.com/title/tt0756683/ er imdb linkurinn á hana og eins og þið sjáið þá er hún með 8.4/10 sem ég hef ekki séð nógu mikið fyrir mynd sem flokkast undir sci-fi.


Ólíkt öðrum myndum þá gerist þessi mynd í stofu í litlu húsi, þar sem fólk er nánast allan tímann sitjandi og tala saman..

Þrátt fyrir það að hljóma eflaust óspennandi fyrir marga þá kemur hún skuggalega mikið á óvart, þrátt fyrir að það sé bara mest setið og talað þá var umræðuefnið einfaldlega svo spennandi að ég sökk inn þessa mynd og gat ekki litið af þessu fyrr en ég var búin að klára myndina.

Eftir að ég var búin að horfa á hana þá leitaði ég á topp5.is, kvikmyndir.is og kvikmyndir.com en ég fann ekkert um þessa mynd sem er synd.


Ég fann mína útgáfu á torrent og er viss um að það leynist einhverstaðar eintak af henni, sjálfur ætla ég að kaupa þessa mynd á netinu og sem ég hef lesið af imdb.com þá flestir þar líka eftir að hafa downloadað þessari mynd.


Lesið ykkur til um myndina, finnið eintak af henni og einhver koma svo með frábæra grein þar sem þessi mynd á það svo sannarlega skilið!
//Skari