Ég er að fara í skólabúðir í Bárðardal þar sem við verðum á stuttmyndagerðarnámskeiði. Við stelpurnar (erum allar saman í hóp og engir strákar BÖMMER) ætlum að gera svolítið CSI inspíraða stuttmynd þar sem að einn er myrtur og eyðibýli kemur fyrir. Mér var sett fyrir að gera uppkast af handriti.
Ég hinsvegar er með ritstíflu þessa dagana og mér dettur ekkert sniðugt plott í hug.
Svo ég ætla að biðja ykkur, kæru hugarar, að hjápa mér… Einhverjar hugmyndir um plott?
Allir hlutir eru haldnir heimþrá til jarðarinnar og þess vegna falla þeir þangað þegar tækifæri gefst.