Allt í lagi, ég veit að mörgum finnst þessi mynd góð, en mér fannst hún mjög svo léleg. Fyrsta lagi töluðu allir með írskum hreim eða skoskum eða þá enhverju öðru, og Angelina Jolie talar með einhverju sem er hvorki líkt írskum, enskum eða skoskum hreim. Svo er Colin alltaf grenjandi einhverja hluta vegna sem er í lagi en það er svo of leikið að það er hörmung. Og þegar það er verið að láta í ljós að hann sé hommi kemur það ekki nógu vel fram, frekar að hann sé tví. Og kannski það versta í allri myndini eru innihals lausar bardaga senur sem eru bara blóð, ekkert annað. Þeir einu góð í þessari mynd eru Val Kilmer og Anthony Hopkins. Ég ættla ekki að tjá mig meira um þessa mynd en fynnst hún ekki það góð.
Ég mun ekki láta kúa mig af fíflum heimsins. Og ég veit að ég stafset ekki vel.