Idle Hands (1999) Leikstjóri: Rodman Flender
Aðalhlutverk: Devon Sawa,Seth Green,Elden Ratliff,Jessica Alba,Christopher Hart,Vivica A. Fox,Jack Noseworthy, Katie Wright,Sean Whalen,Nicholas Sadler,Fred Willard,Connie Ray,Steve Van Wormer,Kelly Monaco,Timothy Stack
Handrit: Terri Hughes, Ron Milbauer
Framleidd af: TriStar Pictures, Columbia Pictures Corporation,
Lengd myndar: 90 mínútur
Tegund: Gamanmynd/Hrollvekja


Devon Sawa leikur Anton, hann er fullkomin ímynd lata mannsins situr heima hjá sér í stofunni reykir hass horfir á sjónvarpið og klórar sér í pungnum.
Anton er svo freðinn að hann veit ekki af foreldrum sínum látnum uppí svefnherbergi.
Foreldrar hans voru vízt drepnir af hendi djöfulsins þar að segja hendi sem er andsetinn af djöflinum
Þegar Anton fattar að foreldrar séu dauðir þá er hann andsetinn nánar tiltekið hægri hendi hans.
Höndinn myrðir allt sem hún kemst í jafnvel vini hans Antons, Mick(Seth Green) og Pnub(Elden Henson).
En þeir snúa aftur til að halda partýinu gangandi, reyndar bara til að geta setið með Anton, reykt hass og horft á sjónvarpið.

Þetta er fínasta mynd þegar heildina er litið, hún sleppur allveg við að vera enn ein unglingahrollvekjan, þar sem hún er bara nokkuð frumleg.
Gaman að sjá offspring í gestahlutverki og sjá hvernig hendi Antons tekur á móti þeim.

damage : ***/****
Imdb.com: 5,4/10