Fyndnustu atriði allra tíma? Já… Hér eru 5 fyndnust atriði sem ég hef séð á ævi minni. Atriði sem ég hef sprungið úr hlátri yfir. Ég get eiginlega ekki fundið fleiri en þessi 5 sem mér hefur fundist vera virkilega fyndin en hér kemur þetta, frekar stutt.

1. Naked Gun 1

Fyndnasta mynd sem ég hef séð. Ég hef aldrei hlegið jafn mikið og þá meina ég það en í atriðinu þegar Frank Drebin er á gluggasyllunni á húsinu hjá erkióvininum Ludwig. Hann er eitthvað að gaufa þar og síðan reynir hann að halda jafnvægi með því að toga í styttu af nöktum karlmanni, þetta endar svo þegar hann er kominn inn um einhvern glugga lafmóður og helfur á “concrete dildo” ,eins og yfirmaður hans orðaði það fyrir framan einhverja konu. Frábært atriði, frábær mynd.

2. Ace Ventura: When Nature Calls

Næst fyndnasta atriði sem ég hef séð er þegar Ace er í vélnashyrningi að njósna um vonda kallinn. Hann situr þarna í sjóðandi hita og kemst ekki út. Svo endar þetta á því að hann þarf að troða sér út um afturendann á honum og það er með því fyndnara sem ég hef séð. Fjölskylda i safarí kemur á svæðið í hita leiksins “Look the rhino is giving birth!” Svo kemur hann allsber út úr rassinum á honum. Þetta er ómetanlegt atriði.

3. Life of Brian

Hin þokkalegasta gamanmynd en það er eitt atriði sem stendur langt fyrir ofan hin. Það er “Biggus Dickus” atriðið en alveg magnað atriði og hægt að hlæja mikið af því. “Is there something funny about my friend… Biggus Dickus?” Mögnuð lína.

4. Dumb and Dumber

Harry og Lloyd sitja á veitingastaðnum og Lloyd hellir niður salti. Harry segir honum að henda saltstauknum aftur fyrir sig til þess að losna við ógæfuna og hann hendir í hausinn á einhverjum miður skemmtilegum manni. “Who threw that?” Núna kemur snilldin í atriðinu… Harry bendir mjög lymskilega beint í andlitið á Lloyd og lætur gaurinn vita að hann henti stauknum.

5. True Lies

Ég er að ofnota þessa mynd ég veit. Mér finnst hún bara vera svo friggin góð og fyndin. Það eru svö mörg virkilega fyndin atriði finnst mér að maður getur hlegið að þessu öllu saman. Það er erfitt að finna eitthvað sem er fyndnasta atiðið í henni en það er bara allt sem Gib segir og nánast allt sem Simon segir.

Komið nú með einhver mjög fyndin atriði, ég man ekki eftir fleirum þessa stundina.