Ég verð nú bara að koma með comment á hvað ég upplifði í gærkveldi. Er virkilega einginn þróun í bíóhúsum hér á landi ? Ég er maður sem fer sjaldan í bíó það sjaldan að seinasta mynd sem ég sá var fyrri loftr myndin. Ég skelti mér loks aftur í bíó í gær nánar tiltekið Laugarásbíó nætursýningu þar sem þetta var eina sýningin sem ekki var orðið uppselt á. Ég og félagi minn mætum tímalega þar sem við lentum næstum í slagsmálum á seinnustu mynd. 40mín í sýningu og fyrsta sem ég tók eftir var að fólk var að reyna mynda tvöfalda röð fyrir framan hurðina en þegar leið á sýningu var allt orðið tröðið og fólkið sem kom fyrst var orðið aftast þar sem aðrir voru komnir nær hurðinni. Þarna þurfti maður að standa í 40min nýþröngt og útsýni á rassinn á næsta manni, skítalykt í loftinu ásamt andfýlu frá hálfum salnum. Loks þegar hurðinn opnast 00:30 þegar mynd á að byrja þá sprak sprengjan og sjaldan hef ég séð eins mikinn troðning á mínu lífi og er betur farið með menn í nfl en í röð í bíó daginn í dag.

Hvað er málið ? er ekki árið 2002 hálló!!! wake upp þið sem stjórnið þessum kvikmyndahúsum! Ég er td mikill kvikmyndaunandi og finst fátt annað sekmmtilegra en að fara í bíó en get það eingaveginn eftir þesu kerfi ykkar sem fólk er löngu komið ógeð af.

Hvernig væri að taka upp númerakerfi ? Eins og þekkist að ég held í flest öllum löndum sem ég hef stigið á og er virkilega skemtun að fara í bíó erlendis heldur en hér þar sem maður á í hættu á að stórslasa síg á að fara í bíó!
Laugarásbíó er td stórhætulegt eg skil ég ekki afhverju heilbrigðiseftirlit lokar ekki þessum stað því þetta er ekki mann bjóðandi. Mér leið td ömurlega og fékk nokkrum sinnum aðsvif útaf þungu lofti þegar ég stóð í röð + inní salnum og hvaða jólasveinn fann uppá að láta þessa hurð á sal eitt opnast í áttinna að fólkinnu ? Er fólk ekki að sjá hvað þessi hurð er að gera þegar hún loks opnast ? Ég sá td fullt af fólk kremjast útí horn útaf þessari hurð og margt fólk féll á jörðina og sorglegast var að sjá fólkið sem lág á jörðinni var notað sem teppi og tók fólk ekkert tilit og vóð einfaldlega yfir það :(

Þessu þarf að breyta! Er kannski einginn að sjá þetta nema ég? Ég trúi ekki að fólk vilji láta traðka á sér og vera rífast útaf sætum jafnvel slást! Hvernig væri að bíóhúsa eigendur gerðu eitthvað STRAX! þetta er búið að líðast í of mörg ár og er ánægðin að fara í bíó orðið = og einginn.

Ég var samt frekar sáttur við þessa mynd og hvet alla að sjá hana!Mér fannst bara allt þetta bögg fyrir mynd hafa haft mikil áhrif á skemmtunargildið því maður var orðinn frekar pirraður á að bíða og stara á rassinn á næsta manni í þungu lofrti í 40 min. En því betur fer var þessi mynd jafn mikill snild og hún var! Og sorglegt að maður þurfti að uplifa hana á þennan hátt :(

Með von um nýtt bíókerfi!
kv
jonny